Samfélag fyrir fjölskyldur
Óskar frá Sjálfstæðisflokknum.

Aðsend grein

Óskar Jósúason

Ég þekki það af eigin raun, eins og svo margir, hvað það er oft mikið púsluspil að láta daginn ganga upp. Hvaða dagur er í dag, er leikfimi, er æfing hjá þessum, já ok er hann að fara á báðar æfingar í dag og leikfimi. Svo fundurinn í kvöld hjá þessum flokki. Varstu búin að græja nesti. Heldur þú að það verði farið í þessa keppnisferð um helgina, það er ekki frábær sjóveðurspá. Ekki talandi um, hvað á að vera í matinn! Þetta eru eflaust spurningar og samræður á mörgum heimilum.

Púsluspil daglegs lífs

Þetta púsl verður svo óneitanlega örlítið flóknara þegar að fríin hjá börnunum bætast við. Ég er ekki mikil púsl áhugamaður meira að segja höfða þessi klassísku Wasgij jólapúsl ekki til mín. Ég hef þolinmæði, fyrir mörgu, en alls ekki fyrir þessu. En þetta er samt veruleikinn sem flest heimili lifa við á hverjum degi og það er einmitt hér sem samfélagið skiptir máli. Þegar kerfið í kringum okkur virkar vel, þá léttir það undir. Þegar það gerir það ekki, þá verður púsluspilið flóknara en það þarf að vera.

Sterkt samfélag í Eyjum

Þó að lífið verði alltaf ákveðið púsl, þá á það ekki að vera flókið af því að kerfið í kringum okkur styður ekki við það. Hlutverk sveitarfélagsins er að einfalda daglegt líf, styðja við fjölskyldur og skapa umhverfi þar sem hlutirnir ganga betur upp.

Í Vestmannaeyjum er margt gert vel. Samfélagið stendur á sterkum grunni þar sem stuttar vegalengdir, nálægð og sterk tengsl skapa aðstæður sem mörg önnur samfélög hafa ekki. Þetta er raunverulegur, styrkur sem við eigum að reyna nýta betur. Í slíku samfélagi er hægt að taka ákvarðanir nær fólkinu, bregðast hraðar við og þróa þjónustu sem mætir þörfum fjölskyldna í daglegu lífi. Litlar breytingar í skipulagi geta haft stór áhrif á daglegt líf, það er þar sem sveitarfélagið getur raunverulega skipt máli.

Styrkleikar og forgangsröðun

Með vexti fylgja auknar kröfur. Þrýstingur á þjónustu eykst og verkefnin verða fleiri. Það kallar á aukna þjónustu, en líka betra samtal við íbúa um það sem skiptir mestu máli. Með skýru samtali getum við forgangsraðað verkefnum á skynsaman hátt og tekið ákvarðanir sem standast til lengri tíma.

Það skiptir máli að við förum ekki fram úr okkur. Uppbygging þarf að vera á ábyrgum grunni, þar sem jafnvægi er á milli metnaðar og getu samfélagsins til að standa undir verkefnunum.  Traust byggist ekki á loforðum, heldur á því að standa við það sem er sagt. Þannig byggjum við upp traust samfélag og tryggjum að þjónustan haldi áfram að styrkjast í takt við þarfir fólks. Það snýst ekki bara um að gera meira, heldur að gera rétt.

Einfalt markmið – Heiðarlegt samtal

Markmiðið er einfalt. Að byggja upp samfélag þar sem fjölskyldur fá að dafna og daglegt líf verður betra. Til þess þurfum við að nýta þá styrkleika sem við höfum, halda áfram að bæta þjónustu og eiga heiðarlegt samtal um forgangsröðun og næstu skref.

Óskar Jósúason, upplýsingafulltrúi og varabæjarfulltrúi

Skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Samfélag fyrir fjölskyldur
ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Byggjum þetta bara
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.