Knattspyrnukonan unga, Milena Mihaela Patru, var á dögunum í eldlínunni með U16 ára landsliði Íslands á UEFA þróunarmóti í Finnlandi.
Milena, sem er fædd árið 2011, hefur leikið upp alla yngri flokka ÍBV og vakið athygli fyrir markaskorun sína. Hún hefur þegar leikið 24 meistaraflokksleiki með ÍBV og skorað í þeim 11 mörk.
Á mótinu mætti Ísland Ungverjalandi, Írlandi og Finnlandi. Milena kom við sögu í öllum þremur leikjunum, bæði sem byrjunarliðsmaður og varamaður, og lék í fremstu víglínu íslenska liðsins.
ÍBV segir á vef sínum að félagið sé stolt af Milenu og hlakki til að fylgjast áfram með henni í framtíðinni.