Leikfélagið stendur fyrir spunasýningu á morgun fimmtudaginn 29. maí, en þetta er þeirra þriðja sýning af þessu tagi.
Um er að ræða svokallað improv eða spunaleikhús þar sem ekkert efni er skrifað eða æft fyrirfram. Persónur, samtöl og sögur verða til í augnablikinu og geta áhorfendur jafnvel haft áhrif á gang sýningarinnar með hugmyndum úr sal.
Spunasýningar hafa notið vinsælda víða hérlendis og erlendis, en áhersla er lögð á létta stemningu og húmor þar sem óvæntar uppákomur geta orðið hluti af kvöldinu.
Sýningin hefst klukkan 20:00 en húsið opnar klukkan 19:30. Bar verður opinn á meðan sýningu stendur yfir og kostar aðeins 1000 krónur.
Hér má sjá brot frá síðustu sýningu