Síðustu vikur og mánuðir hafa verið langt frá því skemmtilegar þegar kemur að samgöngum milli lands og eyja. Siglingar í Landeyjahöfn hafa verið ótryggar og það hefur haft gríðarleg áhrif á verslunar- og ferðaþjónustufyrirtæki í eyjum. Ég þekki þetta vel af eigin reynslu sem fyrrverandi eigandi að ferðaþjónustufyrirtæki að hver einasta vika skiptir máli, hver dagur telur á stuttu ferðamannatímabili.
Núna skiptir enn meira máli að við stöndum saman!
Mig langar að hvetja ykkur kæru Eyjamenn, til að nýta komandi daga, næstu vikur og sumarið vel og leyfa okkur aðeins að njóta og standa þétt að baki þjónustuaðilunum í eyjum.
„Munum að njóta!“ er slagorð The Brothers Brewery sem ég átti hlut í, mig langar að njóta þessarar þjónustu sem okkur stendur til boða ekki bara yfir sumarið á hverju ári. Þau fyrirtæki sem starfa í okkar samfélagi og veita okkur þjónustu verða að finna að okkur er ekki sama.
Förum út og kaupum okkur pulsu í sjoppunum, ís eða bara bland í poka. Kíkjum í verslanirnar okkar, mætum á tónleika og viðburði, heimsækjum söfnin okkar, förum út að borða eða pöntum heimsendan mat. Setjumst niður yfir kaffibolla eða jafnvel í einn öl. Þeir sem vilja ganga lengst geta svo bara keypt sér gistingu til að gera daginn enn betri og rómantískari.
Með litlum skrefum getum við haft stór áhrif. Styðjum hvert annað, styrkjum samfélagið og hjálpum fyrirtækjunum okkar að halda áfram að skapa líf og störf í eyjunum. Þau skipta okkur öll máli og þurfa á okkur að halda núna sem aldrei fyrr!!
Kjartan Vídó