Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Omar Sowe skoraði í endurkomuleiknum sínum í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í fótbolta vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í níundu umferð Bestu deildar karla þegar þeir rúlluðu yfir Keflavík á Hásteinsvelli í dag.

Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og uppskáru mark eftir stundarfjórðung. Bjarki Björn Gunnarsson átti þá fyrirgjöf sem Róbert Elís Hlynsson skallaði í markið. Halldór Jón Sigurður Þórðarson tvöfaldaði forystu ÍBV fimm mínútum fyrir hálfleiksflautið. Alex Freyr Hilmarsson átti frábæra sendingi í gegn á Halldór sem kláraði fram hjá markverði Keflavíkur. Eyjamenn leiddu sanngjarnt 2-0 í hálfleik. 

Bjarki Björn lagði upp fjögur mörk

Alex Freyr Hilmarsson kom ÍBV í 3-0 á upphafsmínútum síðari hálfleiks með góðu skoti úr teignum eftir frábæran undirbúning hjá Bjarka Birni Gunnarssyni. Milan Tomic bætti svo fjórða markinu við á 52. mínútu aftur eftir undirbúning Bjarka. Muhamed Alghoul minnkaði muninn fyrir Keflavík þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum þegar hann skoraði af stuttu færi. Róbert Elís Hlynsson skoraði sitt annað mark í dag og fimmta mark ÍBV á 67. mínútu. Viggó Valgeirsson kom þá boltanum á Róbert sem skoraði með hnitmiðuðu skoti í fjærhornið. Omar Sowe batt endahnútinn í stórsigri ÍBV með góðu marki, fimm mínútum fyrir leikslok. Afar ánægjulegt að sjá Omar aftur á vellinum eftir árs fjarveru vegna erfiðra meiðsla. 

Frábær 6-1 sigur Eyjamanna staðreynd sem komust með sigrinum upp úr botnsætinu og eru með fimm stig. Keflavík sigla um miðja deild með 11 stig.

ÍBV 6 – 1 Keflavík
1-0 Róbert Elís Hlynsson (’14 )
2-0 Halldór Jón Sigurður Þórðarson (’39 )
3-0 Alex Freyr Hilmarsson (’49 )
4-0 Milan Tomic (’52 )
4-1 Muhamed Alghoul (’61 )
5-1 Róbert Elís Hlynsson (’67 )
6-1 Omar Sowe (’85 )

Nýjustu fréttir

Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.