Ný bæjarstjórn tekur til starfa í dag – fundurinn í beinni
Oddvitar framboðslistanna þriggja, Eyþór Harðarson, D-lista, Arndís Kjartansdóttir E-lista og Jón Þór Guðjónsson M-lista.

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Vestmannaeyja eftir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí fer fram í Ráðhúsinu í dag, miðvikudaginn 3. júní, og hefst klukkan 14:00. Fundurinn markar upphaf nýs kjörtímabils þar sem kjörnir fulltrúar taka formlega til starfa og móta skipan bæjarstjórnar og nefndakerfis næstu fjögur árin.

Á dagskrá fundarins eru meðal annars staðfesting á kjöri bæjarfulltrúa, kosning forseta bæjarstjórnar, varaforseta og skrifara, kosningar í ráð, nefndir og stjórnir, ákvörðun um þóknanir kjörinna fulltrúa og ráðning bæjarstjóra. Þá verður einnig fjallað um samgöngumál og niðurstöðu íbúakosningar um þróunarsvæðið M2.

Fundurinn er sýndur í beinni útsendingu hér á vef Eyjafrétta og gefst íbúum þannig kostur á að fylgjast með fyrstu ákvörðunum nýrrar bæjarstjórnar. Bein útsending hefst hér klukkan 14:00. Dagskrá fundarins má sjá fyrir neðan útsendingargluggann.

Dagskrá:

Almenn mál

1. Sveitarstjórnarkosningar 2026 – 202604049

2. Kosning forseta bæjarstjórnar, varaforseta og skrifara – 202605180

3. Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar – 202605181

4. Þóknun til fulltrúa í nefndum og ráðum á vegum Vestmannaeyjabæjar – 202605182

5. Ráðning bæjarstjóra – 202605183

6. Dagskrá bæjarstjórnarfunda 2026-2027 – 202605184

7. Umræða um samgöngumál 2026 – 202605185

8. Íbúakosning 2026 um þróunarsvæðið M2 – 202601039

Fundargerðir

9. Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja – 439

Liður 1, Malarvöllur og Langalág íbúðarbyggð og leikskóli skipulagsáætlanir (ÍB-5), liggur fyir til staðfestingar. Um er að ræða auglýsingu á skipulagsáformum fyrir Malarvöll og Löngulág.

Liður 2, Strandvegur 63 – Umsókn um breytt deiliskipulag, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að kynningu á vinnslustigi er varðar tillögu að breyttu deiliskipulagi.

Liðir 3-7 liggja fyrir til upplýsinga.

10. Bæjarráð Vestmannaeyja – 3259 
Liðir 1-8 liggja fyrir til upplýsinga.

11. Framkvæmdar- og hafnarráð Vestmannaeyja – 337 
Liðir 1-9 liggja fyrir til upplýsinga.

Nýjustu fréttir

Ný bæjarstjórn tekur til starfa í dag – fundurinn í beinni
Hvers vegna segja svona margir það sama?
Sköpunarhúsið áfram opið í sumar 
Tónleikar og skemmtun í Höllinni um helgina
Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.