Léttir hlaut nafn sitt við hátíðlega athöfn - myndir
Nýr vinnubátur Vestmannaeyjahafnar, Léttir, hlaut nafn sitt við hátíðlega athöfn í höfninni á sjómannadagshelginni. Eyjafréttir/Eyjar.net – Óskar P. Friðriksson.

Nýr vinnubátur Vestmannaeyjahafnar, Léttir, hlaut nafn sitt við athöfn í höfninni í gær. Fjölmenni var viðstatt þegar báturinn var formlega nefndur. Það kom í hlut Írisar Róbertsdóttur, bæjarstjóra að gefa bátnum nafn. Að lokinni nafngift blessaði séra Viðar Stefánsson skipið og áhöfn þess áður en gestum var boðið til létts veisluhalds á hafnarskrifstofunni.

Léttir er öflugur vinnubátur af gerðinni StanTug 1205 frá Damen, smíðaður árið 2017. Báturinn er 13 metra langur og 5,3 metrar á breidd, með 9 tonna dráttargetu og tvær skrúfur sem auka stjórnhæfni hans við krefjandi aðstæður í höfninni. Tvær Volvo Penta vélar skila saman um 700 hestöflum. Báturinn var keyptur á rétt rúmar 110 milljónir króna.

Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta mætti á svæðið og tók nokkrar myndir. Hægt er að smella á myndirnar hér að neðan til að opna þær stærri.

Nýjustu fréttir

Fagmönnun langt undir lágmarki á Hraunbúðum
Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð
Vörubakarí opnaði í morgun
Herjólfur III í haffærisskoðun um mánaðamótin – dýpkun hefst í byrjun ágúst
Hafnaði nær öllum verkefnum í júlí til að undirbúa Brekkusönginn
Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.