Íþróttafélagið Ægir fór í keppnisferð til Danmerkur
Mynd/Íþróttafélagið Ægir

Íþróttafélagið Ægir lagði leið sína til Danmerkur síðastliðna helgi til að taka þátt í Special Olympics Idrætsfestival sem haldið er þar í landi annað hvert ár. Tíu keppendur tóku þátt fyrir hönd Ægis og kepptu þau annað hvort í handbolta eða boccia. 

Birgir Rúnar Júlíusson spilaði tvíliðaleik í boccia með grænlenskum keppenda og enduðu þau í fjórða sæti. 

Ylfa Óladóttir og Júlíana Silfá Haraldsdóttir spiluðu saman í tvíliðaleik og gerðu sér lítið fyrir og unnu til gullverðlauna. 

Handboltaliðið skipað þeim Ólafi Guðmundssyni, Birgir Reimari Rafnssyni, Guðmundi Ásgeiri Grétarssyni, Katrín Helenu Magnúsdóttur, Stefán Róbertssyni, Antoni Sigurðssyni og Guðna Davíð Stefánssyni, ásamt tveimur lánsstelpum frá Öspinni, enduðu mótið í fjórða sæti. 

Fram kemur á Facebook-síðu Ægis að hópurinn skemmti sér konunglega, skapaði minningar og gerði sitt besta bæði innan og utan vallar. 

Þar kemur einnig fram ,,Að lokum viljum við þakka Þroskahjálp og Minningarsjóði Gunnars Karls fyrir að styrkja okkur til þátttöku á þessu frábæra móti en án þeirra hefði verið ansi erfitt að taka þátt í svona skemmtilegu verkefni. Við viljum einnig þakka þjálfurunum okkar, fararstjórum og aðstoðarfólki fyrir þeirra framlag í að gera helgina algjörlega frábæra í alla staði, takk elsku þið”. 

 

Nýjustu fréttir

Fagmönnun langt undir lágmarki á Hraunbúðum
Baldur flutti nærri ársfjölda Breiðafjarðar á 45 dögum
Þessi föstudagur á Þjóðhátíð
Vörubakarí opnaði í morgun
Herjólfur III í haffærisskoðun um mánaðamótin – dýpkun hefst í byrjun ágúst
Hafnaði nær öllum verkefnum í júlí til að undirbúa Brekkusönginn
Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.