
Sex nýjar Tesla Supercharger-hraðhleðslustöðvar hafa verið teknar í notkun við Tangagötu í Vestmannaeyjum. Um er að ræða stöðvar af nýjustu gerð, svokallaðar V4-stöðvar, sem geta skilað allt að 250 kW hleðsluafli og eru opnar fyrir allar gerðir rafbíla.
Davíð Guðmundsson, sem komið hefur að uppbyggingu hleðsluinnviða í Eyjum um árabil, segir að verkefnið hafi verið lengi í undirbúningi.
„Það má segja að þetta hafi verið nokkur ár í vinnslu. Þegar ég kom með fyrstu Tesluna til Eyja árið 2020 setti ég upp eina heimahleðslustöð á bak við Hvítahúsið og bauð hana til frjálsra afnota. Tesla á Íslandi höfðu áhuga á þessu framtaki og árið 2021 fóru þeir að útvega rekstraraðilum slíkar stöðvar gegn því að almenningur hefði aðgang að þeim án endurgjalds,“ segir Davíð.
Í kjölfarið bættust við tvær stöðvar við Hvítahúsið og þrjár til viðbótar á Básaskersbryggju í samstarfi við Vestmannaeyjahöfn. Að sögn Davíðs hefur Tölvun frá árinu 2021 afhent Eyjamönnum og gestum yfir 150 þúsund kílóvattstundir af raforku án endurgjalds, að verðmæti um fjórar milljónir króna.
Davíð segir að hann hafi um árabil hvatt Tesla til að ráðast í uppbyggingu hraðhleðslustöðva í Vestmannaeyjum. „Ég ýtti reglulega við Tesla á Íslandi að koma upp hraðhleðslustöðvum hér og í fyrra fór boltinn að rúlla. Hingað komu tveir starfsmenn Tesla frá Noregi til að kanna aðstæður, en Tesla Noregi hefur yfirumsjón með Supercharger-netinu á Norðurlöndum.“
Í framhaldinu var unnið að staðarvali í samstarfi við Vestmannaeyjabæ. „Í góðri samvinnu við Vestmannaeyjabæ fundum við frábæra staðsetningu sem passaði vel inn í umhverfi HS Veitna. HS Veitur unnu síðan vel að því að koma öflugri heimtaug á svæðið enda eru stöðvarnar mjög afkastamiklar.“
Nýju stöðvarnar geta í dag skilað allt að 250 kW afli, en tæknin býður upp á enn meiri afköst í framtíðinni. Samkvæmt Davíð getur venjulegur rafbíll farið úr um 20 prósent hleðslu í 80 prósent á um fimmtán mínútum við bestu aðstæður.
Með tilkomu nýju stöðvanna mun Tölvun loka þremur gjaldfrjálsum hleðslustöðvum sínum við Hvítahúsið.
Davíð telur hins vegar að hleðsluinnviðir í Eyjum séu nú orðnir mjög öflugir. „Með þessari viðbót erum við komnir vel fram úr þörfum Eyjamanna og getum um leið sinnt ferðamönnum á rafbílum mun betur. Rafbílavæðingin heldur áfram af fullum krafti og þróunin er hröð.“
Hann bendir jafnframt á að næstu stóru breytingar í samgöngum geti falist í aukinni sjálfvirkni ökutækja. „Nú eru sjálfkeyrandi bílar ekki lengur draumsýn heldur veruleiki sem sífellt fleiri þjóðir eru að heimila. Það styttist í að svokallaðir robotaxar verði hluti af daglegu lífi og flytji fólk á milli staða án ökumanns.“
Frágangi á svæðinu við Tangagötu verður lokið síðar í júní.
