Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Úr leiknum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í fótbolta er á blússandi siglingu í Bestu deild karla en þeir höfðu betur gegn Stjörnunni, 2-1, í elleftu umferð deildarinnar á Hásteinsvelli í kvöld.

Stjarnan fékk draumabyrjun en þeir skoruðu eftir rúmlega þrjátíu sekúndur þegar Benedikt V. Warén kom þeim yfir. Daníel Finns Matthíasson átti þá fyrirgjöf frá vinstri sem Ari i Haraldsstovu Petersen, markvörður ÍBV, sló út í teiginn, fyrir fætur Benedikts Warén, sem kláraði örugglega. 

Sesar Örn Harðarson jafnaði leikinn fyrir ÍBV á 28. mínútu eftir laglegt samspil. Liam Daði Jeffs kassaði boltann fyrir Alex Frey Hilmarsson sem átti frábæra sendingu í gegn á Sesar sem setti boltann í fjærhornið, stöngin inn. Bjarki Björn Gunnarsson kom ÍBV yfir fjórum mínútum síðar  þegar boltinn barst til hans inn á teig Stjörnunnar. Hann lék fram hjá Árna Snæ Ólafssyni, markverði Stjörnunnar, og skoraði í tómt markið. Staðan 2-1 í hálfleik. 

Mikið var um baráttu og stimpingar í síðari hálfleik og vildu Eyjamenn til að mynda fá tvær vítaspyrnur. Hvorugu liðinu tókst að setja mark í síðari hálfleik og unnu þar með ÍBV sinn þriðja leik í röð. Lokatölur leiksins 2-1.

ÍBV eru komnir upp í níunda sæti deildarinnar og eru með 11 stig. Stjarnan situr í áttunda sæti, líka með 11 stig, en eru með betri markatölu.

ÍBV 2 – 1 Stjarnan
0-1 Benedikt V. Warén (‘1 )
1-1 Sesar Örn Harðarson (’28 )
2-1 Bjarki Björn Gunnarsson (’32 )

Önnur úrslit:

FH 1 – 1 Þór

Valur 1 – 1 Keflavík

Breiðablik 3 – 1 KA

Nýjustu fréttir

Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Gagnasöfnun vegna fýsileikamats Eyjaganga lokið
Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt umfram áætlun
Ný stjórn SASS stillir saman strengi
Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.