Goslokahátíð stendur undir nafni sem fjölskydluhátíð
Einastkir tónleikar Guðrúnar Erlings og Mannakorn fyllti Höllina sem var endapunkturinn á fjölbreyttum degi
Mikið líf og fjör var á Bárustíg í gær. Myndir Óskar Pétur.

Miðbæjarfjör, listsýningar og tónleikar settu svip sinn á föstudag Goslokahátíðar þar sem líf og fjör var um allan bæ. Hæst bar skemmtun Vestmannaeyjabæjar í Bárustíg, útgáfutónleikar Guðrúnar Erlingsdóttur í Eldheimum og tónleikar Mannakorns sem fylltu Höllina um kvöldið.

Goslokahátíð hélt áfram af fullum krafti í gær þegar boðið var upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Frá því snemma morguns og fram á kvöld gátu gestir og bæjarbúar valið úr fjölda viðburða, allt frá íþróttum og marköðum til listsýninga, opins húss og tónlistar.

Dagurinn hófst meðal annars með Icelandair Volcano Open á vegum Golfklúbbs Vestmannaeyja. Víða um bæinn voru listasýningar opnar, meðal annars í Sagnheimum, Landlyst, Svölukoti, Gallerý 24, Gallerý Skúrnum, Ákógesi og Einarstofu. Þá voru einnig opnanir á nýjum sýningum, meðal annars hjá Hrafnhildi Kristinsdóttur í Sagnheimum og Jónu Kristjánsdóttur í Gelp krónni.

Mikil stemning var í miðbænum síðdegis þegar Miðbæjarfjör Vestmannaeyjabæjar fór fram í Bárustíg. Þar naut fólk skemmtunar fyrir alla fjölskylduna og Kiddi Bigfoot sá um tónlistina og hélt uppi góðri stemningu.

Guðrún Erlingsdóttir hélt útgáfutónleika í Eldheimum þar sem hún flutti lög af nýrri plötu sinni, Sólarlag, ásamt öflugum hópi tónlistarfólks. Tónleikarnir voru vel sóttir og fengu afar góðar viðtökur.

Hápunkti dagsins var svo náð um kvöldið þegar hljómsveitin Mannakorn steig á svið í Höllinni fyrir þéttsetnum sal. Gestir tóku vel undir gömlu og góðu lög sveitarinnar og skapaðist frábær stemning sem sló lokatóninn glæsilegum föstudegi á Goslokahátíð.

Auk þessara stóru viðburða var opið hús í Hvíta húsinu og Heimaey, vinnu- og hæfingarstöð, þar sem handverk og kerti voru til sölu. Pop-up markaður í húsnæði Taflfélagsins, útilistasýning á Stakkó, jóga undir berum himni og fjölmargar aðrar sýningar og viðburðir tryggðu að allir fundu eitthvað við sitt hæfi.

Með fjölbreyttri dagskrá, góðu veðri og mikilli þátttöku ríkti sannkölluð hátíðarstemning í Vestmannaeyjum og ljóst að Goslokahátíðin stendur undir nafni sem ein stærsta og fjölbreyttasta menningar- og fjölskylduhátíð landsins. Og fjörið heldur áfram í dag í sól og blíðu.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Goslok: dagskrá sunnudags
Goslokahátíð stendur undir nafni sem fjölskydluhátíð
Fjölbreytt mannlíf á öðrum degi Goslokahátíðar
Forsendur dómsins verða yfirfarnar
Þrír af okkar fremstu söngvurum syngja í Eldheimum
Valur kemur til Eyja eftir viðburðaríka viku
Goslok: dagskrá laugardags
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Kristian Örn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.