Lúkas Goði - Stefnan tekin á atvinnumennsku
Lúkas Goði Harðarson. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Landsliðið og Pressuliðið léku sinn árlega leik á Orkumótinu í ár þar sem Pressuliðið fór með 6-3 sigur af hólmi. Fulltrúar ÍBV í Landsliðinu svöruðu nokkrum spurningum Eyjafrétta varðandi mótið og fleira. 

Nafn? Lúkas Goði Harðarson.

Aldur? 9 ára, verð 10 ára 5. ágúst.

Fjölskylduhagir? Á stóra fjölskyldu, mamma mín heitir Elva Björk Einarsdóttir, pabbi minn heitir Hörður Þór Harðarson, systur mínar heita Birta Líf og Hekla Sól, bræður mínir eru Aron Smári og Gabríel Þór. Svo á ég bestu ömmu Ester og afa Einar og fullt af litlum frændsystkinum. 

Hvernig var að spila landsleik Orkumótsins? Ég var rosa glaður að vera valinn, var samt svolítið stressaður fyrst en svo var þetta bara mjög gaman, að kynnast strákunum úr öðrum liðum og spila með þeim og bara geggjuð upplifun.

Hvernig gekk á mótinu? Bara ágætlega, mjög gaman en hefði viljað að við hefðum unnið fleiri leiki. 

Hvað stóð upp úr? Auðvitað að vera valinn í Landsliðið og spila með því. 

Hvert er stefnan tekin í fótboltanum? Komast í atvinnumennsku. 

Uppáhalds knattspyrnumaður/kona? Bruno Fernandes er bestur!

Eitthvað að lokum? Áfram ÍBV og MAN UTD.

 

 

 

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.