„Sumarlesturinn gengur mjög vel og við erum mjög ánægð með viðtökurnar,“ segir Drífa Þöll Arnardóttir, bókavörður á Bókasafni Vestmannaeyja. Sumarlesturinn hófst í byrjun júní og hafa ríflega 200 börn skráð sig til leiks.
Verkefnið er ætlað öllum börnum í Vestmannaeyjum, hvort sem þau eru á leik- eða grunnskólaaldri. Börn sem ekki eru farin að lesa sjálf geta tekið þátt með því að fá foreldra eða aðra fullorðna til að lesa fyrir sig. „Markmiðið er einfaldlega að efla lestrargleði og hvetja börn til að lesa yfir sumarið. Við hófum þetta verkefni árið 2018 og þátttakan hefur aukist ár frá ári,“ segir Drífa Þöll.
Á hverju sumri er valið nýtt þema og í ár er það kappakstur. Að sögn Drífu Þallar hefur kynning verkefnisins í grunnskólunum skilað sér vel. „Við fórum inn í skólana í vor og kynntum Sumarlesturinn og undirtektirnar hafa verið ótrúlega góðar. Nú koma krakkarnir sjálfir á safnið til að skrá sig. Er sérstaklega ánægjulegt að sjá að þátttaka yngstu barnanna er sífellt að aukast.“
Þegar börnin skrá sig fá þau sérstakan lestrarhest sem þau safna límmiðum á eftir því sem lestrinum vindur fram. Fyrir hverja lesna bók fá þau einnig happamiða sem fara í vinningapott.
Verkefninu lýkur með uppskeruhátíð 29. ágúst þar sem öll börn sem tóku þátt fá glaðning og öllum börnum er boðið að koma og fagna lokum sumarlestursins. Drífa Þöll hvetur fjölskyldur til að nýta tækifærið og taka þátt með börnunum. „Við viljum minna á að það er ekki bara Sumarlestur fyrir börn heldur einnig fyrir ungmenni og fullorðna. Þannig getur öll fjölskyldan tekið þátt í lestrarátaki sumarsins.“