Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Insignia og Seabourn Venture í heimsókn – Sól, hlýtt og mikið líf í bænum
Insignia liggur í Friðarhöfn og er annað tveggja skemmtiferðaskipa í Vestmanneyjahöfn, fjöldi ferðamanna á ferli og sól og hlýindi er sannkölluð sumarstemning í Vestmannaeyjum í dag.

Skemmtiferðaskipið Insignia er í Vestmannaeyjum í dag, laugardaginn 25. júlí. Skipið kom í morgun og samkvæmt áætlun heldur það aftur úr höfn síðdegis. Það liggur í Friðarhöfn við kantinn framan við Vinnslustöðina. Veðrið leikur við heimamenn og gesti í Eyjum í dag. Sól og hlýindi eru í bænum og margt  fólk á ferli. Farþegar skemmtiferðaskipanna setja svip sinn á bæjarlífið og víða má sjá gesti á göngu og skoða það sem Vestmannaeyjar hafa upp á að bjóða.

Insignia er gert út af Oceania Cruises og er eitt af minni skemmtiferðaskipum félagsins. Skipið er um 181 metri að lengd og tæpir 26 metrar á breidd. Það tekur mest 684 farþega miðað við tvo í klefa og í áhöfn eru um 400 manns. Alls geta því verið rúmlega 1.080 manns um borð þegar skipið er fullnýtt.

Insignia lagði af stað frá Reykjavík í gærkvöldi og eru Vestmannaeyjar fyrsti viðkomustaðurinn í þessari siglingu. Frá Eyjum liggur leiðin til Færeyja, þar sem komið verður við í Þórshöfn og Runavík, áður en haldið verður aftur til Íslands.

Á áframhaldandi siglingu umhverfis landið verður meðal annars komið við á Djúpavogi, Eskifirði, Akureyri, Ísafirði og Grundarfirði. Ferðinni lýkur síðan í Reykjavík 3. ágúst.

Insignia var smíðað árið 1998 og hét upphaflega R One. Skipið er rúmlega 30 þúsund brúttótonn og siglir undir fána Marshall-eyja.

Seabourn Venture í Vestmannaeyjum

Lúxusleiðangursskipið Seabourn Venture er einnig í Vestmannaeyjum í dag og liggur við Nausthamarsbryggju. Skipið var tekið í notkun árið 2022 og er sérstaklega hannað fyrir leiðangurssiglingar á afskekktum slóðum, meðal annars á norðurslóðum.

Seabourn Venture er um 170 metra langt, um 23 þúsund brúttótonn og getur tekið allt að 264 farþega. Um borð er einnig fjölmenn áhöfn. Skipið er ísvarið og búið sérstökum leiðangursbúnaði, meðal annars Zodiac-bátum og kajökum. Vestmannaeyjar eru meðal síðustu viðkomustaða skipsins í ferðinni áður en haldið er til Reykjavíkur.

Insignia liggur við Friðarhöfn en i dag eru tvö skemmtiferðaskip í höfn, fjölda ferðamanna á ferli og sól og hlýindi er sannkölluð sumarstemning í Vestmannaeyjum í dag.

 

Nýjustu fréttir

Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.