Samveran í Dalnum stendur upp úr
Bjarni Rúnar og Arna Hrund.

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið.

Nafn: Bjarni Rúnar Einarsson. 

Fjölskylda: Unnustan Arna Hrund og börnin Einar Bent, Myrra Rún og Björt. 

Hvernig leggst Þjóðhátíðin í þig?  Nokkuð vel. Mér finnst alveg kominn tími á betra veður en hefur verið undanfarin ár. 

Hversu oft hefur þú farið á Þjóðhátíð? Ég held að þessi verði sú fertugasta. 

Hvað stendur upp úr á hverju ári? Fyrst og fremst samveran með fjölskyldu og vinum. Annars finnst mér brennan og brekkusöngurinn oftast standa upp úr. 

Uppáhalds Þjóðhátíðarhefðin? Tjöldunin. Svo er skyldumæting á setninguna og ég elska að fá heita súpu uppi í tjaldi þegar komið er úr brekkunni á kvöldin. 

Hvert er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið? Þau eru nú mörg mjög góð, en þau sem standa upp úr eru Haltu fast í höndina á mér, Iður, Takk fyrir mig og Þúsund hjörtu. 

Hvað má ekki vanta í hvíta tjaldið? Það eru alveg nokkrir hlutir, aðallega matartengdir. En ef ég þyrfti að nefna eitthvað eitt væru það flatkökur með hangikjöti. 

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.