Hvítu tjöldin - Skinkuhornin hafa fylgt Þjóðhátíðinni frá árdaga
Gunni og Drífa í Brekkunni.

Undirbúningurinn hjá fjölskyldu Drífu Þallar er að hennar sögn nokkuð hefðbundinn. „Bakstur, mála súlur ef þess þarf, kanna stöðuna á húsgögnunum og svona,“ segir hún. Fjölskyldan er aðeins á sínu þriðja ári með eigið tjald en áður var hún með Gáfumannafélaginu. Því segir Drífa að sérstakar hefðir í nýja tjaldinu eigi eflaust enn eftir að verða til. „Það er náttúrulega kaffið eftir setninguna. Annars er þetta bara þriðja árið okkar með sér tjald, þar sem við vorum áður með Gáfumannafélaginu, svo hefðirnar eiga eflaust eftir að koma.“ Eitt hefur þó fylgt Drífu lengi og það eru skinkuhornin. „Það eru skinkuhornin sem ég baka á hverju ári og hef gert frá því í árdaga. Uppskriftin kemur frá mömmu minni en er með smá tvisti frá Elínu vinkonu, sem stal upprunalegu uppskriftinni og staðfærði hana.“ 

Eggjastokkarnir urðu til á tjaldarölti 

Fyrir Drífu er það stemningin í hvítu tjöldunum sem öðru fremur gerir Þjóðhátíð að þeirri hátíð sem hún er. „Stemningin í hvítu tjöldunum er það sem gerir Þjóðhátíð að Þjóðhátíð. Það skiptir engu hvað er að gerast á sviðinu.“ Ein skemmtilegasta minning hennar tengist hljómsveitinni Eggjastokkunum, sem varð einmitt til á tjaldarölti í Herjólfsdal. „Þá vorum við vinkonurnar með Sigga Vídó á flakki og tókum eitt lag í hverju tjaldi. Siggi spilaði á gítar en við á „Eggjastokka“. Það var einmitt Siggi sem fann nafnið á sveitinni, en það er orðið að hefð að við vinkonurnar notum egglaga hristur í gítarpartýunum.“ 

Fjallabræður fylltu tjaldið 

Ein ógleymanlegasta stundin í hvítu tjöldunum er þó frá því um 2013 eða 2014, þegar Drífa og hennar fólk voru með Gáfumannafélagstjaldið. „Þetta var samt ekki árið sem þeir voru með Þjóðhátíðarlagið. Einn tjaldbúinn, Hjálmar Helgason, var og er í Fjallabræðrum og þeir voru að syngja á stóra sviðinu þessa Þjóðhátíð.“ Eftir miðnætti hófst gítarpartý í tjaldinu og fljótlega bættust góðir gestir í hópinn. „Nánast allir Fjallabræður komu og tjaldið var svo stappfullt og stemningin ótrúleg. Það var staðið uppi á kommóðum, borðum og bekkjum til þess að sem flestir kæmust inn í tjaldið. Ferlega skemmtilegt partý!“

Nýjustu fréttir

Þjóðhátíðarleikur á Hásteinsvelli í dag – Fram mætir í heimsókn
Dagskrá laugardags á Þjóðhátíð
Hvítu tjöldin – Skinkuhornin hafa fylgt Þjóðhátíðinni frá árdaga
Föstudagskvöldið í Dalnum í máli og myndum
Doctor Victor snýr aftur á stóra sviðið
Frá Dauðagámnum í Hvíta tjaldið
Mikið fjölmenni við setningu Þjóðhátíðar
Hvítu tjöldin – Baksturinn kemur fjölskyldunni í Þjóðhátíðargírinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.