ÍBV og Fram mættust í fyrsta leik 17. umferðar Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í Þjóðhátíðarleik í dag, þar sem Fram hafði betur 1-2.
Fyrri hálfleikur var frekar bragðdaufur og voru Eyjamenn í vandræðum með að skapa sér alvöru færi. Framarar komust yfir á 17. mínútu leiksins þegar Sigurður Arnar Magnússon varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Fram fengu svo vítaspyrnu undir lok hálfleiks sem Freyr Sigurðsson skoraði örugglega úr. Staðan 0-2 í hálfleik.
Seinni hálfleikur var á svipuðum nótum, Fram voru með yfirhöndina. Það var ekki fyrr en undir lok leiks sem Eyjamenn ógnuðu marki Framara að einhverju ráði. Þeir uppskáru vítaspyrnu á 77. mínútu þegar Sesar Örn var tekinn niður inn í teig. Vicente Valor fór á punktinn og skoraði af öryggi. Nær komust Eyjamenn ekki og niðurstaðan 1-2 tap.
Eyjamenn sitja í áttunda sæti deildarinnar með 16 stig. Með sigrinum komust Framarar upp fyrir KR og eru í öðru sæti með 37 stig. KR á leik til góða.
ÍBV 1 – 2 Fram
0-1 Sigurður Arnar Magnússon (’17, sjálfsmark)
0-2 Freyr Sigurðsson (’43, víti)
1-2 Vicente Valor (’78, víti)
Rautt spjald: Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram (’81)
Sunnudagur 2. ágúst 14:00 ÍA – Víkingur R.
Mánudagur 3. ágúst 19:15 Valur – Stjarnan
Þriðjudagur 4. ágúst 18:30 Þór – Breiðablik
Miðvikudagur 5. ágúst 18:00 Keflavík – KA
Miðvikudagur 5. Ágúst 19:15 FH – KR