Talsverður fjöldi skemmti sér í Herjólfsdal í blíðskaparveðri í nótt og hafði lögreglan í Vestmannaeyjum í ýmis horn að líta. Sex einstaklingar gistu fangageymslur.
Lögreglan hélt uppi öflugu fíkniefnaeftirliti og komu níu fíkniefnamál upp. Eitt þeirra er til rannsóknar vegna gruns um sölu fíkniefna.
Þá voru tvær minniháttar líkamsárásir tilkynntar til lögreglu auk þess sem ýmis verkefni tengd ölvun komu til kasta hennar. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar í Vestmannaeyjum.