Aníta Óðinsdóttir - Tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn
Aníta Óðinsdóttir og Thelma Hrund Kristinsdóttir.

Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem fram fer laugardaginn 22. ágúst, ræða Eyjafréttir við nokkra hlaupara frá Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár.

Næst í röðinni er Aníta Óðinsdóttir, sem ætlar að hlaupa 10 km. Hún hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls, sem að þessu sinni styrkir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur. 

Aldur? Ég er 39 ára.

Fjölskylda? Ég er gift Guðmundi Inga Guðmundssyni og eigum við þrjá stráka Huginn, Gabríel Gauta og Óðinn Inga.

Við hvað starfar þú? Ég starfa sem sérfræðingur hjá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja.

Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Ég byrjaði bara að hlaupa að alvöru núna í ár en hef alltaf verið að hreyfa mig.

Uppáhalds vegalengd sem þú hleypur? Mánaðarlegar hlaupaleiðir sem Friðrik setti upp í vor fyrir Puffin Run voru allar geggjaðar.

Hvar er skemmtilegast að hlaupa? Utanvegar í Vestmannaeyjum.

Hvenær sólahrings er best að hlaupa? Hádeginu.

Besti hlaupafélaginn? Minna mín.

Uppáhalds hlaupaskór og fatnaður? Nike Vomero Plus hlaupaskór og fatnaður frá H-verslun.

Hvað er ómissandi á hlaupaæfingu? Góðir hlaupaskór.

Hvernig nærir þú þig kvöldinu áður og morguninn fyrir keppnishlaup? Borða næringaríka fæðu daginn fyrir hlaup sem inniheldur kolvetni og svo er það bara banani fyrir hlaup.

Bestu tímar í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni? Ég er nú bara byrjandi í þessum hlaupum og ætla að taka fyrsta sinn þátt í Reykjavíkurmaraþoninu núna í ár.

Hvað hleypur þú mikið í hverri viku? Ég reyni að hlaupa alltaf með Eyjaskokk tvisvar í viku.

Hleypur þú eftir æfingaáætlun? Já, fylgi vikulegri æfingaáætlun sem að Friðrik setur upp fyrir Eyjaskokk.

Hvaða vegalengd tekur þú í Reykjavíkurmaraþoninu? Ég ætla að hlaupa 10 km.

Ertu með einhver markmið fyrir hlaupið? Markmiðið mitt er bara að klára þetta hlaup og líða vel allan tímann.

Hvernig hefur undirbúningurinn gengið? Undirbúningurinn hefur bara gengið mjög vel.

Ætlar þú að hlaupa fyrir eitthvað góðgerðarfélag? Af hverju? Já, ég ætla að hlaupa fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls. Í ár hefur sjóðurinn ákveðið að tileinka áheitasöfnunina Guðbjörgu Sillu, 17 ára Eyjapæju, sem greindist á síðasta ári með taugahrörnunarsjúkdóminn MND (ALS). Þetta verkefni er mér afar kært og mér finnst mikilvægt að geta lagt mitt af mörkum til að styðja Guðbjörgu Sillu og fjölskyldu hennar á þessum erfiða tíma.

Lýstu þér sem hlauparar í einni setningu? Ég er í raun og veru bara að hlaupa til þess að hafa gaman af því en mér finnst hlaupin stuðla að bættri andlegri líðan.

Eitthvað að lokum? Ég hvet alla sem hafa tök á að styrkja Minningarsjóð Gunnars Karls þetta árið. Saman getum við stutt við Guðbjörgu Sillu og fjölskyldu hennar á þessum erfiða tíma. Öll framlög, stór sem smá, skipta máli. ❤️

Hægt er að heita á Anítu með því að smella hér.

 

Nýjustu fréttir

Hlynur Andrésson hljóp maraþon á EM í morgun
Aníta Óðinsdóttir – Tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn
Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd
Mikilvæg stig í húfi hjá ÍBV á Hásteinsvelli
Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Eyjum á morgun
Minna á lokanir við Viðlagafjöru
Landtaka NSL-4 gekk samkvæmt áætlun
Útlagningu NSL-4 lauk í nótt
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.