Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd
Framkvæmdir við fjölbýlishúsið við Tangagötu eru komnar vel á veg. Skjáskot úr myndbandi Halldórs B. Halldórssonar.

Framkvæmdir við nýtt fjölbýlishús Steina og Olla að Tangagötu 10 eru komnar vel á veg. Í húsinu verða 16 íbúðir á fjórum efri hæðum, rúmlega 300 fermetra þjónustu- og skrifstofurými á jarðhæð og bílageymsla í kjallara.

Íbúðirnar verða frá 74 upp í 178 fermetra og fylgir hverri þeirra stæði í bílageymslunni. Áætlanir gera ráð fyrir að framkvæmdum ljúki vorið 2027.

Í nýju myndbandi frá Halldóri B. Halldórssyni er farið um bygginguna og staðan á framkvæmdunum skoðuð. Halldór sýnir húsið bæði að innan og utan auk þess sem loftmyndir gefa góða yfirsýn yfir nýbygginguna og umhverfi hennar við höfnina. Myndbandið var tekið á föstudaginn sl..

Play Video

Nýjustu fréttir

Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.