Hlynur Andrésson hljóp maraþon á EM í morgun
mynd: facebook

Eyjamaðurinn Hlynur Andrésson hljóp maraþon á Evrópumótinu í frjálsíþróttum, í Birmingham í morgun. Hann endaði í 45. sæti. 52 keppendur luku keppni en 59 hófu hlaupið.

Hlynur kom í mark á 2 klukkutímum og 22,09 mínútum sem er langt frá hans besta tíma. Hann á Íslandsmetið sem hann setti árið 2021 en það er 2 klukkutímar og 13,37 mínútur. 

Hlynur sagði í samtali við RÚV að lokinni keppni í dag að tilfinningin væri vonbrigði. ,,Ég gaf mér séns til að hlaupa vel í dag og reyna að gera eitthvað. En kúrsinn var bara það erfiður og þegar lappirnar byrjuðu að gefa sig eftir 28 kílómetra þá var bara ekkert eftir og ég hef aldrei hætt keppni í landsliðstreyjunni og ég ætlaði ekki að byrja á því í dag þannig ég vildi bara klára.” 

Hlynur stefnir á næsta hlaup í nóvember en þá ætlar hann að hlaupa 15 kílómetra.

Nýjustu fréttir

Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.