Útflutningsverðmæti eldisafurða jókst um 40% á föstu gengi á fyrstu níu mánuðum ársins. Rúmlega þúsund manns störfuðu að jafnaði við fiskeldi á fyrstu átta mánuðunum og bjuggu rúm 84% þeirra utan höfuðborgarsvæðisins.
Útflutningsverðmæti eldisafurða nam 6,2 milljörðum króna í september og jókst um 67% á föstu gengi frá sama mánuði í fyrra. Á fyrstu níu mánuðum ársins nam verðmætið tæpum 51 milljarði króna, sem er um 40% aukning á föstu gengi frá sama tímabili í fyrra.
Þetta kemur fram í samantekt Radarsins, sem byggir á fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um vöruviðskipti í september. Eldisafurðir námu um 7% af verðmæti alls vöruútflutnings á tímabilinu og hefur hlutfallið aldrei verið hærra á fyrstu níu mánuðum árs.
Á fyrstu átta mánuðum ársins störfuðu að jafnaði rúmlega þúsund manns við fiskeldi, um 8% fleiri en á sama tímabili í fyrra. Rúm 84% starfsfólks bjuggu utan höfuðborgarsvæðisins og fjölgaði í þeim hópi um rúm 9%.
Atvinnutekjur í greininni námu 8,4 milljörðum króna á tímabilinu og jukust um 11% að nafnvirði. Að teknu tilliti til verðbólgu var aukningin rúmlega 5%.
Á landsbyggðinni var tekjuaukningin meiri. Þar jukust atvinnutekjur í fiskeldi um rúm 13% að nafnvirði og tæp 8% að raunvirði.
Í samantekt Radarsins er bent á að efnahagsleg áhrif fiskeldis nái út fyrir greinina sjálfa. Starfsemin skapi einnig störf í öðrum atvinnugreinum sem séu beint eða óbeint háðar umsvifum fiskeldisfyrirtækja.
Jafnframt er því haldið fram að síðustu misseri hafi verið krefjandi vegna lágra verða, hárra skatta og annarra erfiðra rekstrarskilyrða. Kallað er eftir því að stjórnvöld tryggi samkeppnishæfa umgjörð sem styðji við áframhaldandi fjárfestingu og vöxt.
Samkvæmt matinu geti aukin umsvif skilað fleiri störfum, meiri atvinnutekjum og auknum skatttekjum, en forsenda þess sé að rekstrarumhverfið styðji við uppbyggingu greinarinnar.