Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er meðal samtalsstaða verkefnisins Tölum saman, sem fer fram laugardaginn 10. október klukkan 14–17. Ungt fólk leiðir samtölin og öllum kynslóðum er boðið að taka þátt.
„Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ er spurningin sem þátttakendur víða um land munu ræða á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá aðstandendum er Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum meðal þeirra skóla sem taka þátt í verkefninu.
Markmiðið er að fólk á ólíkum aldri komi saman, hlusti á ólík sjónarmið og ræði hvað hver og einn getur lagt af mörkum til mótunar framtíðarinnar. Ungir leiðbeinendur, svokallaðir lóðsar, leiða samtölin.
Samtal, félag til almannaheilla, stendur að verkefninu í samstarfi við skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld. Hugmyndin kviknaði á fundi á Bessastöðum að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari verkefnisins.
Tilefnið er að 40 ár eru liðin frá leiðtogafundi Ronalds Reagan og Mikhails Gorbatsjovs í Höfða árið 1986. Þar ræddu leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna meðal annars ágreining ríkjanna og vopnakapphlaup.
„Markmiðið er ekki að við verðum sammála um allt, heldur að við lærum hvert af öðru,“ segir Halla í fréttatilkynningu Samtals.
Foreldrar, afar og ömmur, kennarar, atvinnurekendur, stjórnmálamenn, listafólk og almenningur eru hvött til að setjast niður með unga fólkinu. Með samtali kynslóðanna sé ætlunin að rækta traust og tengsl og gefa ungu fólki tækifæri til að hafa áhrif á eigin framtíð.
Samhliða samtölunum verður sent út beint streymi frá Menntaskólanum í tónlist klukkan 14–17 á laugardag. Umsjónarmenn eru Kári Einarsson og Embla Bachmann.
Afrakstur samtalanna verður birtur á vef verkefnisins í lok dags og kynntur á viðburðinum Tal og tónar í Hörpu sunnudaginn 11. október klukkan 14. Þar heldur forseti Íslands ávarp og ungt fólk kynnir niðurstöður og inntak samtalanna.
Stúlknakór Kársness, Stúlknakór Reykjavíkur, Tjarnarkórinn, Fjallabræður og Karlakór Reykjavíkur flytja lög helguð friði og bjartri framtíðarsýn. Dagskráin tekur um klukkustund og verður einnig í beinu streymi.
Nánari upplýsingar um samtalsstaði, þátttöku og skráningu eru á talasaman.is.