Sænski markvörðurinn Cornelia Hermansson hefur gengið til liðs við ÍBV og skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Handknattleiksdeild ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum.
Í tilkynningu ÍBV segir: ,,Cornelia er 26 ára gamall markvörður en hún kemur frá Svíþjóð. Síðast lék hún með Kungälvs handbollklubb í heimalandi sínu. Áður lék Cornelia við góðan orðstír með Selfossi og þekkir því til íslensks handbolta og hefur reynslu af því að spila hér á landi.”
Handknattleiksdeild ÍBV lýsir yfir ánægju með að fá Corneliu til félagsins og hlakkar til samstarfsins á næstu árum.