Karlalið ÍBV í handbolta tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarkeppni karla í kvöld með 26-30 sigri á ÍR á útivelli.
Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og náðu fjögurra marka forskoti, 5-9, eftir níu mínútna leik. ÍR-ingar svöruðu fyrir sig og jöfnuðu metin í 10-10 þegar rúmur stundarfjórðungur var liðinn. Heimamenn náðu svo tveggja marka forystu, en ÍBV jafnaði metin skömmu fyrir hálfleik. Staðan var jöfn, 16-16, þegar flautað var til hálfleiks.
ÍBV hóf síðari hálfleikinn betur og náði fljótlega þriggja marka forystu, 17-20. ÍR-ingar jöfnuðu metin á ný, 23-23, þegar 15 mínútur voru til leiksloka.
Eyjamenn reyndust sterkari á lokakafla leiksins og tryggðu sér að lokum nokkuð öruggan fjögurra marka sigur, 26-30, og sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins.
Daníel Þór Ingason var markahæstur hjá ÍBV með átta mörk. Jökull Blöndal Björnsson var markahæstur í leiknum með níu mörk, fyrir ÍR. Sigurmundur Gísli Unnarsson varði sjö skot í marki ÍBV, Petar Jokanovic tvö og Morgan Goði Garner eitt.
Mörk ÍBV: Daníel Þór Ingason 8 mörk, Atli Steinn Arnarson 7, Dagur Arnarsson 6, Sveinn José Rivera 3, Anton Frans Sigurðsson 2, Magnús Dagur Jónatansson 2, Haukur Leó Magnússon 1, Kristófer Ísak Bárðarson 1.
Úrslit kvöldsins í 16-liða úrslitum Powerade bikars karla:
FH 46 – 35 Fram
Selfoss 28 – 37 Valur
Víkingur R. 35 – 28 KA
ÍR 26 – 30 ÍBV
Hvíti riddarinn 22 – 40 Grótta