Hvað táknar gul viðvörun?

Gefin hefur verið út gul viðvörun fyrir allt landið sem tekur gildi á aðfaranótt föstudags og gildir til kl. 21 á föstudagskvöld. Þetta er sérlega djúp og áköf lægð sem nálgast landið úr suðvestri. Líkur eru á að áhrif veðursins verði umtalsverð. En hvers vegna er viðvörunin „bara“ gul? Jú, við notum gula litinn einnig til að vara við veðri lengra fram í tímann, 3-5 daga.  Í skýringartextanum fyrir gula viðvörun segir: „Gul viðvörun getur einnig gefið til kynna að litlar eða miðlungs líkur séu á mjög áhrifamiklu veðri 3-5 daga fram í tímann.“ Þetta á einmitt við veðrið sem er í vændum. Þegar nær dregur og líkurnar á því spáin gangi eftir aukast hækkar  viðvörunarstigið upp á appelsínugult. Þetta er útskýrt í því sem við köllum „Áhrifafylkið“. Þar er horft á „líkur“ og „áhrif“. Viðvörunarlitur ákvarðast þannig af mati sérfræðinga á áhrifum væntanlegs veðurs og líkum á því að spáin gangi eftir.

CAP_Matrix

Miðað við hvernig spárnar fyrir föstudag líta út í dag, þriðjudag, er staðsetning viðvörunar í áhrifafylkinu í þeim kassa sem hakað er við á myndinni. Segjum sem svo að spárnar breytist ekki hvað varðar ákefðina í veðrinu. Líkurnar á því að spáin gangi eftir aukast hins vegar eftir því sem nær dregur föstudeginum og því myndi viðvörunin færast lóðrétt upp líkindaásinn og fá þannig appelsínugulan lit.

Þetta dæmi sýnir að það er mikilvægt að átta sig á því að gul viðvörun 3-5 daga fram í tímann táknar ekki endilega hversu slæmt veður er í vændum.

Nánar um viðvörunarkerfi Veðurstofunnar.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.