Mikilvægt að hlúa að geðheilsunni

Hugrún geðfræðslufélag hefur sett í loftið vefsíðuna gedfraedsla.is. Félagið er rekið í sjálfboðaliðastarfi af háskólanemum og snýr öll starfsemi félagsins að því að bæta geðheilsu ungmenna á Íslandi og auka aðgengi að upplýsingum um geðheilsu.

Á síðunni má nálgast upplýsingar um geðheilsu, geðraskanir og úrræði. Nú sem aldrei fyrr er sérlega mikilvægt að hlúa að geðheilsunni, þekkja helstu einkenni geðraskana og vita hvert á að leita ef eitthvað kemur upp. Á síðunni eru allar þessar upplýsingar settar fram með skýrum hætti og á mannamáli. Síðan er líka í boði á ensku og pólsku en þrátt fyrir mikinn fjölda aðfluttra Íslendinga er oft erfitt að nálgast áreiðanlegar upplýsingar um geðheilsu og úrræði á öðrum tungumálum en íslensku.

Hluti síðunnar er tileinkaður foreldrum, forsjáraðilum og skólastarfsmönnum og þar eru leiðbeiningar til að opna á umræðu við ungmenni um þessi mál með markvissum hætti og veita þeim geðfræðslu. Slík fræðsla er mikilvæg fyrir ungt fólk og samfélagið allt. Hún getur aukið vitneskju, dregið úr fordómum, dregið úr alvarleika vandans og auðveldað ungu fólki að leita til einhvers sem þau treysta þegar þau upplifa andlega erfiðleika.

Í kjölfar útgáfunnar birti félagið, ásamt Landssamtökum íslenskra stúdenta og Sambandi íslenskra framhaldsskólanema, ákall þar sem biðlað er til foreldra að nota leiðbeiningarnar á síðunni til að ræða geðheilsu við ungmenni, kynna fyrir þeim einkenni helstu geðraskana og þau úrræði sem standa til boða á Íslandi. Geðfræðsla er ekki fastur liður af skólastarfi á neinu skólastigi á Íslandi og því vilja félögin biðja foreldra að sinna geðfræðslu, svo ungu fólki á Íslandi sé tryggð sú nauðsynlega fræðsla. Samtal um þessi mál heima fyrir er líka mikilvægt því það opnar á nauðsynlega umræðu og eykur líkur á því að ungmenni treysti sér til að ræða vandamál sem geta komið upp.

Nýjustu fréttir

85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.