Útibú Íslandsbanka opna aftur í dag 11.maí með breyttu sniði. Útibúið í Vestmannaeyjum er opið frá kl. 12:30 – 15:00. Viðskiptavinir eru beðnir um að bóka símtal. Ef erindið krefst afgreiðslu í útibúi er bókaður fundur. Bókið tíma hér og kynnið ykkur afgreiðslutíma.
Eftirfarandi kemur fram á heimasíðu Íslandsbanka.
Til að virða megi tveggja metra regluna um fjarlægð milli fólks þarf að panta tíma fyrirfram til að fá afgreiðslu og hvetjum við viðskiptavini til að bóka sér tíma og við aðstoðum símleiðis. Ef erindið krefst afgreiðslu í útibúi bókum við fund í útbúinu og tökum vel á móti þér. Pantaðu tíma hér.
Ráðgjafaverið er opið frá kl. 9:00 til 16:00 og netspjallið frá kl. 9:00 til 18:00, alla virka daga. Viðskiptavinir eru beðnir um að nýta sér stafrænar lausnir fyrir einfaldari og þægilegri bankaviðskipti.
Eldri borgarar geta hringt í 440-3737 fyrir alla helstu bankaþjónustu.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.