Sigurjón Ernir og Thelma Björk sigruðu í The Puffin Run (myndir)
Snorri Björnsson, Sigurjón Ernir Sturluson og Vignir Már Lýðsson.

The Puffin Run fór fram við kjör aðstæður á laugardaginn. Met þátttaka var í hlaupinu en það var Sigurjón Ernir Sturluson sem kom fyrstur í mark í karlaflokki og Thelma Björk Einarsdóttir var fljótust í kvennaflokki. Nánari úrslit má sjá hér að neðan og á hlaup.is.

Magnús Bragason einn af skipuleggjendum hlaupsins var mjög ánægður þegar við ræddum við hann. “Já þetta var frábært. Sérstaklega er ég ánægður með það hvernig til tókst við ræsinguna sem var flókið verkefni sem við höfðum ekki fengist við áður. Ég vill þakka þeim sem veittu góð ráð við að leysa úr þessu. Þá vill ég þakka sjálfboðaliðum og keppendum fyrir að gera þetta að veruleika með okkur. Það er yndislegt að vera partur af samfélagi þar sem allir eru tilbúnir að leggja hönd á plóg með okkur.”

 

Karlar 20 km:

1 01:26:02 Sigurjón Ernir Sturluson 1990 2XU / On Running 222 00:19:59 00:43:33 01:04:34
2 01:26:18 Snorri Björnsson 1994 205 00:20:09 00:43:35 01:04:36
3 01:27:49 Vignir Már Lýðsson 1989 ÍR 231 00:19:57 00:43:23 01:04:32

Konur 20 km:

1 01:44:16 Thelma Björk Einarsdóttir 1990 Valur Skokk 209 00:23:48 00:51:37 01:17:16
2 01:46:02 Mari Jaersk 1987 459 00:23:56 00:52:24 01:18:08
3 01:47:45 Sóley Guðmundsdóttir 1993 479 00:24:12 00:53:11 01:19:15

Úrslit boðhlaup – Blönduð sveit 2*10 km

1 01:54:17 Sara og Marteinn Marteinn Urbancic 1993 00:24:24 00:27:30 00:51:54
Sara og Marteinn Sara Hrund Helgadóttir 1993 00:29:49 00:32:36 01:02:25

Úrslit boðhlaup – Karlasveit 2*10 km

1 01:52:58 Spæturnar Gísli Guðmundsson 2008 00:27:51 00:33:41 01:01:32
Jochum Magnússon 2007 00:23:39 00:27:33 00:51:12

Úrslit boðhlaup – Kvennasveit 2*10 km

1 01:54:35 Njóta ekki þjóta Bryndís Hrönn Kristinsdóttir 1994 00:29:49 00:32:36 01:02:25
Hugrún Elvarsdóttir 1994 00:24:25 00:27:47 00:52:12

Úrslit boðhlaup – Blönduð sveit 4*5 km

1 01:54:33 Offroadrunners Sindri Georgsson 1991 00:23:16
Elín Sandra Þórisdóttir 1988 00:31:32
Sæþór Gunnarsson 1983 00:28:43
Bjartey Gylfadóttir 1983 00:28:47

Úrslit boðhlaup – Karlasveit 4*5 km

1 01:34:39 Sandri & Harðar Garðar Heiðar Eyjólfsson 1984 00:24:22
Sindri Viðarsson 1982 00:21:35
Andri Þór Gylfason 1991 00:26:21
Hjálmar Jónsson 1980 00:22:21

Úrslit boðhlaup – Kvennasveit 4*5 km

Röð Heildartími Nafn sveitar Nafn hlaupara Fæð.ár Tími
1 02:02:59 Strunsur Sigríður Lára Andrésdóttir 1977 00:33:10
Minna Ágústsdóttir 1977 00:29:21
Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 1984 00:30:38
Tinna Tómasdóttir 1979 00:29:52

 

Nýjustu fréttir

Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.