Tromp meirihlutinn
12. maí, 2020
Bæjarstjórn Eyþór
Frá fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja.
Eyþór Harðarson

Í dag starfar bæjarstjórnarmeirihlutinn í Vestmannaeyjum með það að leiðarljósi að trompa margt af því  sem fyrirrennarar komu í framkvæmd eða á áætlun. Þegar ég segi trompa, þá á ég við að drepa niður hugmyndir eða fella – hefur ekkert með forsetann í vestrinu að gera. Þegar maður hellir svona úr skálum sínum þá þarf að koma með dæmi.

Í fyrsta lagi reyndi nýji meirihlutinn á fyrstu stigum að koma í veg fyrir að bærinn tæki að sér rekstur Herjólfs og myndi stofna félag um það. Yfirtakan á rekstrinum var hugsuð til að skila Eyjamönnum fleiri og ódýrari ferðum,  auk þess að mun fleiri störf sköpuðust í kringum reksturinn með 3 áhöfnum og miklum tækifærum fyrir ferðaþjónustuna um leið. Gríðarlegt framfararspor sem gekk eftir og vel flestir sjá í dag að þetta er langbesta leiðin til að hafa hér góðar samgöngur og efla samfélagið.

Í öðru lagi var komið á áætlun að hagræða mikið í rekstri stjórnsýslunnar hér í Eyjum með því að flytja öll rekstrarsviðin í sama húsnæði í 3.hæð Fiskiðjuhússins. Það sjá það allir hverslags hagræðing það er að flytja tæknideild af hafnarsvæðinu, fjölskyldu og fræðslusvið  af Boðaslóðinni, skrifstofu stjórnsýslunnar og tölvuþjónustu allt á sama stað og gera þar með alla samþættingu í rekstri bæjarins auðveldari og staða bæjarstjórans í miklu betri tengslum við starfsmenn bæjarins. Það þarf ekki að leggjast í mikla útreikninga til að sjá að við þessa hagræðingu væri að sparast fé sem væri hægt að nota árlega í aðra þjónustu við bæjarbúa til framtíðar.  Á 100 ára afmælisfundi bæjarstjórnar í febrúar 2019 þar sem samþykkt var samhljóða að byggja upp gamla ráðhúsið sem móttöku eða viðhafnarsal og geyma þar hluta af söfnum Vestmannaeyjabæjar. Því taldi maður að áformin í Fiskiðjunni væru í vinnslu. En Trompstjórnin trompaði ekki bara ákvörðun fyrri meirihluta heldur einnig eigin hátíðarsamþykkt. Nú á ekki lengur að sameina stjórnsýslu bæjarins á einn stað heldur er sú ákvörðun falin í umræðu um nýsköpun og frumkvöðlastarf. Ég er mjög fylgjandi allri frumkvöðla og nýsköpunar umræðu en skil ekki að hún þurfi að snúast um að nota 3.hæð Fiskiðjunnar. Ég hélt að lykilatriði hjá frumkvöðlum við nýsköpun væri hugmyndirnar en ekki húsnæðið. En hugmyndirnar í nýsköpun hjá trompstjórninni snúast nánast bara um 3. hæð Fiskiðjunnar, en við eigum nægt húsnæði til að stofna fasteignafélag með hópi fyrirtækja sem héldi utanum slíka starfsemi. Nú er unnið að því að breyta gamla ráðhúsinu aftur í fjölmennan vinnustað sem rýmir eingöngu hluta stjórnsýslunnar, þá er augljóst mál að sú viðgerð og standsetning verður miklu dýrari en hátíðarsamþykktin fól í sér.  Að trompa hugmynd fyrri meirihluta vegur þungt í þessu máli. Vonandi sjá þau möguleikana bæjarbúum til heilla og snúa þessu máli í skynsaman farveg.

 

Í þriðja lagi þá skal láta fyrirtæki í Reykjavík útbúa fyrir sig Umhverfisstefnu fyrir 5 milljónir króna. Rétt fyrir kosningar 2018 var samþykkt Aðalskipulag Vestmannaeyja fyrir árin 2015-2035.  Mikil vinna lá að baki þess skipulags og stór skýrsla. Trompararnir hafa hins vegar engan áhuga á Aðalskipulagsskýrslunni og segja engar áætlanir liggja fyrir hjá Vestmannaeyjabæ í umhverfismálum. Látum það vera að búa til plagg sem heitir Umhverfisstefna, en að vinna hana ekki hér með starfsfólki Vestmannaeyjabæjar og eftir skýrslu um Aðalskipulag er óskiljanlegt.   Er ekki hægt að nýta allt það góða starfsfólk sem Vestmannaeyjabær hefur með stuðningi við sérþekkingu – jafnvel ráða námsmenn í sumarstarf til aðstoðar ?  En nei, þetta þurfti að trompa og setja milljónir út úr bæjarfélaginu í stað þess að leggja á sig smá vinnu. Kannski var það tilgangurinn. Væri ekki betra að byggja á því góða starfi sem unnið er hér í heimabyggð og leita til Eyjamanna sem gjörþekkja sitt heimaland ?

 

Eyþór Harðarson, varabæjarfulltrúi.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.