Kaldar kveðjur frá yfirstjórn

Það er algjörlega ólíðandi að yfirleitt skuli vera byrjað á að segja upp ræstingafólki þegar þarf að spara hjá fyrirtækjum og stofnunum.
Drífandi í Vestmannaeyjum og Báran stéttarfélag á Selfossi sendu frá sér eftirfarandi ályktun vegna fyrirhugaðra uppsagna hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Báran og Drífandi stéttarfélög mótmæla fyrirhuguðum uppsögnum á ræstingafólki hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands – HSU. Áunnin réttindi og kjör þeirra starfsmannanna munu rýrna til muna og skapar þeim enn meiri óvissu um framtíðina en er nú þegar í þjóðfélaginu.
Starfsmennirnir hafa undanfarnar vikur verið í framlínu þeirra sem barist hafa við farsóttina á heilbrigðisstofnunum víða um landið. Störf allra starfsmanna á HSU hefur skilað þeim árangri að ekkert smit hefur greinst á stofnuninni og á ræstingafólkið stóran þátt í þeim árangri.
Þetta eru því kaldar kveðjur frá yfirstjórn stofnunarinnar, nú er sér fyrir endann á þessum kafla farsóttarinnar. Því miður virðast gömul sannindi vera að raungerast enn og aftur með því að segja upp þeim sem lægst hafa launin ef spara þarf pening, en hlífa þeim sem hæstu launin hafa.
Stéttarfélögin skora á stjórn stofnunarinnar að finna aðrar leiðir til hagræðingar og hætta við fyrirhugaðar uppsagnir.

F.h. stéttarfélaganna

Arnar G. Hjaltalín
Formaður Drífanda

Halldóra S Sveinsdóttir
Formaður Bárunnar

Drífandi á facebook

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.