Mesti samdráttur í sjávarútvegi frá því snemma á níunda áratugnum
4. júní, 2020

Útflutningur á sjávarafurðum hefur dregist verulega saman það sem af er ári, borið saman við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Samdráttinn  má rekja til loðnubrests, annað árið í röð, brælu í upphafi árs og svo síðast en ekki síst COVID-19 sem hefur valdið miklum erfiðleikum í sjávarútvegi. Þetta rímar ágætlega við nýlega spá Seðlabankans sem gerir ráð fyrir að útflutningur á sjávarafurðum dragist saman um 12% frá fyrra ári. Ef spá bankans rætist verður það mesti samdráttur í sjávarútvegi frá því snemma á níunda áratug síðustu aldar. Þess má geta að hér er átt við magn, en ekki útflutningsverðmæti þar sem afurðaverð og gengi koma við sögu.

Sé tekið mið af fyrstu fjórum mánuðum ársins hefur útflutningsverðmæti sjávarafurða dregist saman um 4% í krónum talið miðað við sama tímabil í fyrra. Þennan samdrátt má einkum rekja til ríflega 14% samdráttar í útfluttu magni. Það sem vegur á móti þessum mikla samdrætti í magni er tæplega 5% hærra verð fyrir útfluttar afurðir í erlendri mynt og rúmlega 6% lækkun á gengi krónunnar, sem styður við afkomu greinarinnar í krónum talið. Þetta er talsvert verri staða en var upp á teningnum á fyrsta ársfjórðungi. Þá stóð útflutningsverðmæti sjávarafurða nánast í stað á milli ára og gengi krónunnar og afurðaverð í erlendri mynt vógu upp samdrátt sem var í útfluttu magni. Gefur því auga leið að apríltölurnar voru ekki upp á marga fiska, en þar gætir áhrifa  COVID-19. Þannig var verulegur samdráttur í útfluttu magni og eins verðlækkun afurða á erlendum mörkuðum, sem rímar vel við þá þróun sem var á verðvísitölu sjávarafurða í apríl og við fjölluðum nýlega um.

Verulegur samdráttur í apríl
Útflutningsverðmæti sjávarafurða var tæpir 17,8 milljarðar króna í apríl, sem er í samræmi við bráðabirgðatölur Hagstofunnar. Þetta er um 17% samdráttur í krónum talið miðað við apríl í fyrra, en vegna lækkunar á gengi krónunnar er hann öllu meiri í erlendri mynt, eða sem nemur um 28%. Þar munar einna mest um samdrátt í útflutningi á sjófrystum og ferskum afurðum sem er bein afleiðing af COVID-19. Nefna má bein áhrif í okkar helstu viðskiptalöndum eins og til dæmis á ferðaþjónustu sem nánast lagðist af og á veitingahús sem var lokað. Eins var verulegur samdráttur í útflutningi á fiskimjöli og frystum hrognum. Sjá má sundurliðun á útflutningsverðmæti sjávarafurða í apríl eftir helstu flokkum á myndinni hér fyrir neðan. Hafa ber í huga að upphæðirnar hafa ekki verið leiðréttar fyrir gengi krónunnar, en yrði slíkt gert yrði munurinn á milli 2019 og 2020 öllu meiri enda var gengi krónunnar 13% lægra nú í apríl en apríl 2019.

Enn meiri samdráttur í vændum?
Tilraunatölfræði Hagstofunnar, sem eru vikulegar upplýsingar um útflutningsverðmæti helstu vöruflokka, gefa til kynna að enn meiri samdráttur sé í kortunum í maí hvað útflutning sjávarafurða varðar. Nú þegar liggja fyrir upplýsingar um fyrstu 21 viku ársins, og vantar því aðeins viku 22 þannig að allur maí sé undir. Hún verður eflaust birt á föstudag samhliða bráðabirgðatölum um vöruskipti í maí. Ef útflutningsverðmæti sjávarafurða verður í takti við það sem það hefur verið undanfarnar vikur, erum við að fara að sjá enn meiri samdrátt í útflutningi sjávarafurða með maí tölunum. Þannig er útflutningsverðmæti sjávarfurða komið upp í tæpa 97 milljarða króna á fyrstu 21 viku ársins samanborið við 108 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. Þetta er 10% samdráttur í útflutningsverðmæti sjávarafurða í krónum talið en um 17% í erlendri mynt.

sfs.is

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst