Viðbót við heimsóknarreglur Hraunbúða

Viðbót við heimsóknarreglur/sáttmála gesta á Hraunbúðir  hafa verið settar í ljósi þeirra nýju smita sem greinst hafa undanfarið í landinu. Þeim er sérstaklega beint til ættingja og gesta sem hafa verið erlendis.

– Komi EKKI í heimsókn til íbúa í 14 daga frá komu til landsins
– Þótt Covid 19, sýnataka á landamærum hafi verið neikvæð hefur reynslan sýnt að smit geta greinst eftir sýnatöku

Baráttan gegn Covid 19 er ekki unnin og viljum við ítreka það sem áður hefur verið rætt að gestir Hraunbúða þvoi og sótthreinsi hendur þegar komið er í heimsókn og virði þá reglu að halda fjarlægð við aðra íbúa.
Það þýðir að heimsóknir eigi sér stað í einkarýmum íbúa eða aðstandendaherbergi en ekki á almennum svæðum s.s matsal. Einnig að passa upp á að snertifletir séu sem fæstir.
Ef kvef eða flensulík einkenni eru til staðar hvetjum við fólk til að halda sig frá heimilinu.
Heimsóknartími er kl 13 – 17:30

Við erum öll almannavarnir og þurfum að hjálpast áfram að við að passa upp á fólkið okkar. Það hefur hingað til gengið svo vel og vonumst við eftir áframhaldandi góðri samvinnu.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.