Rólegt á Makrílveiðum
Heimaey VE

„Það er ekkert að frétta eins og staðan er núna og búið að vera rólegt“, sagði Eyþór Harðarson útgerðastjóri hjá Ísfélaginu aðspurður um makrílveiðar en skipin Ísfélagsins hafa landað um 2000 tonnum það sem af er vertíð í Vestmannaeyjum. „Heimaey og Sigurður hafa verið að færa sig austar á Öræfagrunn í von um eitthvað þar. Þetta fer vonandi að lagast eitthvað.“
Af öðrum fréttum af Ísfélaginu sagði Eyþór að Dala-Rafn væri að landa 110 körum sem fara til vinnslu á Þórshöfn og að Ottó færi á veiðar í dag eftir skveringu en meðal annars var komið fyrir krapakerfi í bátnum. Eyþór sagði söluhorfur aðeins hafa glæðst en staðan væri þó langt frá því sem menn ættu að venjast og töluverð birgðasöfnun orðið í frystigeymslum félagsins. „Við erum með góðar geymslur bæði hér og á Þórshöfn og höfum ekki áhyggjur af því að þær fyllist í bráð,“ sagði Eyþór að endingu.

Nýjustu fréttir

Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
„Gengið eins og í sögu”
Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.