Flugfélagið Ernir hættir flugi til Vestmannaeyja

Flugfélagið Ernir hefur ákveðið að hætta flugi til Vestmannaeyja sökum lítillar eftirspurnar og ótryggra aðstæðna í þjóðfélaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér rétt í þessu. Telja stjórnendur félagsins ekki ráðlagt að halda inn í veturinn að óbreyttu. Félagið er í stakk búið til að hefja flug aftur til Eyja án mikils fyrirvara og því verður fylgst náið með stöðunni í þjófélaginu og í Eyjum næstu misserin. Áfram verður hægt að fá flugvélar leigðar til að komast til og/eða frá Eyjum og er fólki, fyrirtækjum og stofnunum bent á að hafa samband við ernir@ernir.is eða í síma 562-2640 ef um leiguflugsfyrirspurnir eða aðrar spurningar er að ræða.

Flugfélagið Ernir vonast til að geta hafið sig til flugs á ný til Eyja en eins og sakir standa er eftirspurn eftir flugi ekki næg til að réttlæta reglulegt áætlunarflug til Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.