Hér má sjá þær breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem kveðið verður á um í reglugerð um takmarkanir á samkomum sem tóku gildi í dag þriðjudaginn 20. október. Breytingarnar eru að mestu þær sömu og sóttvarnalæknir leggur til. Ráðherra kynnti breytingarnar og minnisblað sóttvarnalæknis á fundi ríkisstjórnar fyrir helgi. Áfram verður kveðið á um strangari takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu en gilda á landsvísu. Utan höfuðborgarsvæðisins verður gerð sú meginbreyting að nándarmörk milli einstaklinga verða aukin úr 1 metra í 2.
Takmarkanir utan höfuðborgarsvæðisins – helstu breytingar:
Óbreyttar reglur um skólastarf
Sóttvarnalæknir leggur ekki til neinar breytingar á gildandi sóttvarnaráðstöfunum í skólastarfi og verður gildistími reglugerðar þar að lútandi því framlengdur.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.