Taka á móti börnunum úti

Nýjar reglur um samkomutakmarkanir vegna COVID-19 hafa tekið gildi frá og með deginum í dag, þ.e. 20. október, og gilda þær til 10. nóvember að öllu óbreyttu. Fjarlægðarmörk eru nú 2 metrar og reglur eru um grímunotkun ef ekki er hægt að halda þeim fjarlægðarmörkum. Leikskólar og frístundaver Vestmannaeyjabæjar hafa brugðist við þessum nýju reglum.

Ætlunin er að taka á móti börnunum úti þegar veður leyfir en að öðru leyti geta foreldrar/forráðamenn komið inn í fataherbergin og skulu þá staldra eins stutt við og kostur er. Þá verða þeir að huga vel að 2 metra reglunni, setja upp grímu ef þeir geta ekki tryggt hana eða bíða úti þar til aðstæður eru betri í fataherberginu. Líkt og áður eru leikskólarnar og frístundaverið lokuð óviðkomandi aðilum. Það er mikilvægt að allir standi saman og virði þessar reglur til að draga úr hættu á smiti sem gæti haft þær afleiðingar að loka þyrfti deildum/kjörnum á leikskólunum.

Nýjustu fréttir

Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.