Gleðilega hátíð!
22. desember, 2020

Bjallan á VSV-húsinu og kertið við Fiskimjölsverksmiðju VSV eru sýnilegir boðberar hins sanna jólaanda og lýsa upp tilveruna í svartasta skammdeginu í bænum okkar. Hvoru tveggja á sér sögu og er liður í aðventu- og jólahefð Vestmannaeyja.

Reykháfurinn var reistur við bræðsluna sumarið 1925, mikið mannvirki og stöndugt. Hann hefur fyrir löngu lokið upphaflegu hlutverki sínu en er sterkur þáttur í bæjarmyndinni á hafnarsvæðinu og hefur nú þann göfuga tilgang að vera jólakerti á þessum tíma árs!

Haraldur Gíslason hjá Vinnslustöðinni segir að starfsmönnum í bræðslunni hafi dottið í hug í aðdraganda jóla gosárið 1973 að búa til járngrindur og breyta reykháfnum í lýsandi jólakerti til að fá meiri birtu í samfélag sem myrkur og aska grúfðu yfir eftir hamfarirnar. Uppátækið vakti mikla lukku og jók bjartsýni í bænum. Mörgum af eldri kynslóðum sérstaklega þykir sem jólin séu gengin í garð þegar kveikt er á kertinu við fiskimjölsverksmiðjuna.

Söguleg er líka hin lýsandi jólabjalla sem blasir við á þaki VSV og hefur ekki verið þar í mörg ár. Sú var á árum áður á húsi Fiskiðjunnar og vekur minningar hjá mörgum, þar á meðal Lilju Björgu Arngrímsdóttur hjá Vinnslustöðinni:

„Ég man vel eftir bjöllunni á húsnæði Fiskiðjunnar þegar ég var krakki. Þar störfuðu báðir mínir foreldrar, pabbi sem rafvirki og afi minn var reyndar vélvirki þar líka. Mamma þreif verbúðirnar. Margar ferðir ívoru farnar bæinn í desember til að sjá jólabjölluna. Virkilega hátíðlegt og skemmtilegt að sjá hana komna á ný á húsnæði VSV.“

Margir erlendir starfsmenn í Eyjum um hátíðar

Óvenjumargir starfsmenn VSV af erlendum uppruna verja jólum og áramótum í Vestmannaeyjum í þetta sinn. Skýringin á því er nærtæk: kórónuveirufaraldurinn með tilheyrandi truflunum í samskiptum og samgöngum. Megi hátíðin verða þeim góð og gæfurík fjarri svo mörgum ættmennum sínum og vinum.

Svo er  hins vegar fjarskipta- og tölvutækninni fyrir að þakka að heimurinn skeppur saman þegar svo ber undir. Fólk getur haldið sambandi á Vefnum og notið samverustunda og fjölskyldufunda á þann hátt. Þetta nefndu viðmælendur Fjölmenningar í Vestmannaeyjum í skemmtilegum viðtölum núna í desember.

Í hópi viðmælenda voru tveir starfsmenn Vinnslustöðvarinnar: Joao Miguel Tavares Do Carmo frá Portúgal og Daria Monika Matenko frá Póllandi. Hann kom til Íslands fyrir tæplega tveimur árum en hún fyrir fjórum árum. Bæði fagna jólum með siðum og í þeim anda sem þau ólust upp við í heimaríkjum sínum.

Hann borðar soðinn, saltaðan þorsk með kartöflum og osta og kökur, á aðfangadagskvöld en hinn hápunktur jólahaldsins er messa og hádegismatur á jóladag.

Hún er með tólf rétta matseðil á aðfangadagskvöld og þarf að hafa talsvert fyrir því að útvega sumt góðgætið á hátíðarborðið. Þarna er að finna fisk, kjöt, kál, baunir, sveppi, rauðrófusúpu, pasta og soðkökur. Við jólaborð Pólverja er einn stóll auður handa „óvænta gestinum“.

Sinn er siður í landi hverju og auðgar mannlífið og menninguna að kynnast mismunandi hátíðarhefðum.

 

 

Svo skulum við endilega halda því til haga að mun fleiri Portúgalar en margan grunar bera á borð saltfisk frá Vestmannaeyjum um jólin. Sú vara er í hávegum höfð meðal þeirra sem kunna gott að meta skal gera sér dagamun. Algengt er að íslensk fyrirtæki gleðji viðskiptavini og aðra vini á aðventunni með reyktu kjöti, ostum, rauðvíni eða sælgæti. Þegar hins vegar fyrirtæki í Portúgal gera sérlega vel við sína vildarvini færa þau þeim saltfisk frá Vestmannaeyjum. Þá brosa þiggjendur breitt og hlakka enn meira til aðfangadagskvöldsins.

Gleðileg jól.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.