Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari A landslið karla í handbolta valdi í gærkvöldi þá sextán leikmenn sem héldu nú í morgunsárið til Portúgals. Strákarnir okkar leika gegn heimamönnum í undankeppni EM 2022, þar ytra á miðvikudaginn kl. 19:30 og verður leikurinn í beinni útsendingu á RÚV. Hópurinn kemur svo heim strax á fimmtudaginn og hefja þá undirbúning sinn fyrir heimaleik sinn gegn Portúgal sem fram fer á Ásvöllunn sunnudaginn 10. janúar kl. 16:00. Leikið verður hér heima án áhorfenda en leikurinn verður í beinni á RÚV.
Leikmannahópur Íslands er eftirfarandi í stafrófsröð:
Alexander Petersson Die Rhein-Necker Löwen
Arnar Freyr Arnarsson MT Melsungen
Arnór Þór Gunnarsson Die Bergische HC
Ágúst Elí Björgvinsson KIF Kolding
Bjarki Már Elísson TBV Lemgo Lippe
Elvar Örn Jónsson Skjern Håndbold
Gísli Þorgeir Kristjánsson SC Magdeburg
Janus Daði Smárason Frisch Auf Göppingen
Kári Kristján Kristjánsson ÍBV
Oddur Grétarsson HBW Balingen
Ólafur Andrés Guðmundsson IFK Kristianstad
Ómar Ingi Magnússon SC Magdeburg
Sigvaldi Björn Guðjónsson Vive Tauron Kielce
Viggó Kristjánsson TVB 1898 Stuttgart
Viktor Gísli Hallgrímsson GOG Håndball
Ýmir Örn Gíslason Die Rhein-Necker Löwen
Fjórir leikmenn úr æfingahópi fyrir HM verða eftir heima við æfingar en það eru Björgvin Páll Gústavsson, Elliði Snær Viðarsson, Kristján Örn Kristjánsson og Magnús Óli Magnússon.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.