Skólahald hefst með nokkuð eðlilegum hætti
Þriðjudaginn 5. janúar hefst skóli á ný eftir jólalaeyfi. Skóli verður samkvæmt stundatöflu og nú hefur verið létt talsvert á takmörkunum í skólastarfi sem þýðir að skólahald verður með nokkuð eðlilegum hætti. Þetta kemur fram í frétt á vef Grunnskóla Vestmannaeyja. Meðal breytinga eru:

  • Hafragrautur verður aftur í boði á morgnana.
  • Hádegismatur verður í boði á ný.
  • Félagsaðstaða opnar fyrir unglingastigið í frímínútum.
  • Valgreinar á unglingastigi byrja aftur með hefðbundnum hætti.
  • List- og verkgreinar á miðstigi verða með hefðbundnum hætti.

Áfram þarf að huga vel að sóttvörnum í skólanum og sótthreinsa á milli hópa. 2 m reglan er í gildi meðal starfsfólks og grímuskylda þar sem ekki næsta að halda 2m. Grímuskylda hjá starfsfólki í matsal. Engin grímuskylda hjá nemendum. Hámark 50 nemendur í hverju rými og hámark 20 starfsmenn.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema nauðsyn beri til. Stjórnendum grunnskóla er heimilt að krefja foreldra, þurfi þeir að koma inn í skóla­bygg­ingu, um að nota andlitsgrímur.

Hér má finna nýjustu reglurnar sem gilda til 28. febrúar 2021:

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.