Óafturkræft skemmdarverk í sögu skipasmíða í Eyjum
Blátindur við Skansinn sumarið 2019. Mynd: Gunnar Ingi.

Stjórn Hollvina Húna II á Akureyri og Stjórn Hollvina Magna í Reykjavík skora á stjórn Minjastofnunnar og Framkvæmda-og hafnarráð Vestmannaeyja að falla frá því að farga Blátindi.
Vestmannaeyjar hafa verið ein stærsta verstöð landsins um aldir enda er þaðan skammt í gjöful fiskimið. Blátindur sem smíðaður var í Dráttarbraut Vestmannaeyja árið 1947, 45 rúmlestir að stærð, sléttsúðaður eikarbátur. Þegar Blátindi var hleypt af stokkunum var hann meðal stærstu og glæsilegustu fiskiskipa í Vestmannaeyjum.
Blátindur er síðasti báturinn sem enn er til frá þeirri blómlegu skipasmíði er var um langan tíma í Eyjum. Ef að förgun yrði er það óafturkræft skemmdarverk í verndun sögu skipasmíða í Eyjum og sögu Eyjanna.
Ljóst er að verulegur kostnaður fylgir því að gera bátinn haffæran, sem er að okkar áliti besti kosturinn. Þær fullyrðingar að erfitt sé að fá efni og þekking sé varla fyrir hendi til að endurbyggja Blátind er með öllu röng. Einnig má horfa til Norðmanna sem gera reglulega upp gömul tréskip og þar er ekki talið óeðlilegt að slíkt verk taki 5-10 ár, þannig dreifist kostnaður við verkið. Enn eru starfandi skipasmíðastöðvar þar sem menntaðir skipasmiðir eru að starfa og annast viðgerðir á tréskipum. Auðvelt er að flytja Blátind til viðgerðar.
Hvert sem framhaldið verður ber að hafa í huga að Blátindur er friðaður á grundvelli aldurs, skv. lögum um menningarminjar nr. 80/2012, og heyrir undir Minjastofnun Íslands.

Stjórn Hollvina Húna II á Akureyri Stjórn Hollvina Magna í Reykjavík

Nýjustu fréttir

Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Emil Gautason í lokahóp u-16
900 krónur urðu að 45 milljónum!
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.