Breytt deiliskipulag við sorpsstöð, Áshamar og á hafnarsvæði
11. febrúar, 2021
Móttökustöð úrgangsefna í Vestmannaeyjum Tillaga að deiliskipulagi

Hjá Vestmannaeyjabæ eru um þessar mundir fjögur skipulagsmál í kynningarferli. Þessi mál ásamt fylgigögnum má nálgast hér að neðan.

Nýtt deiliskipulag fyrir móttökustöð úrgangsefna og fyrirhugaða brennslustöð á svæði I-1.

Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar samþykkt 28. janúar 2021 að kynna nýtt deiliskipulag skv. 41. gr. laga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir móttökustöð úrgangsefna á svæði I-1 (sem er sama svæði og núverandi móttöku svæði).

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að móttökustöð fyrir almenning og aðkoma að svæðinu verði flutt á norðausturhluta svæðisins. Einnig er gert ráð fyrir að aðstaða á vinnusvæðinu sé bætt með frágengnu yfirborði og steyptum efnishófum. Einnig er gert ráð fyrir að húsnæði sorpvinnslustöðvarinnar geti stækkað til austurs. Svæði innan lóðar með óröskuðu hrauni er ekki raskað.

Það er stefna Vestmannaeyjabæjar að draga úr myndun úrgangs og stuðla að endurnýtingu og endurvinnslu hans eins og kostur er. Með því má draga úr þörf fyrir förgun á úrgangi. Meðhöndlun úrgangs er flókið ferli, sem felur í sér söfnun, flutning, flokkun, endurnýtingu, endurvinnslu og svo förgun þess úrgangs sem nýtist ekki.

UPPDRÁTTUR

GREINARGERÐ

Auk þess má finna nánari gögn varðandi fyrirhugaða brennslustöð og frummatsskýrslu umhverfismats hennar á heimasíðu Alta https://kynning.alta.is/brennslustod

Tillagan verður til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 10. febrúar 2021 til og með 24. mars 2021.

Bæjarbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 24. mars 2021 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5, eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is

Auglýsing á breyttu deiliskipulagi Áshamars. Skipulagstillaga

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 28. janúar 2021 að auglýsa breytingatillögu á deiliskipulagi fyrir Áshamar (ÍB-4) skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um er að ræða breytingar á deiliskipulag fyrir Áshamar – íbúðarhverfis á reit ÍB-4 (sjá á kortavef Vestmannaeyjabæjar, ef hakað er í Aðalskipulag).

Breytingarnar sem gerðar eru á skipulaginu eru að bætt við lóð fyrir dreifistöð rafmagns, gerð er skilmálabreyting fyrir raðhúsareiti þ.a. hámarksstærð íbúða er breytt í 165 m2 en var 150 m2 og aðkoma stíg er komið fyrir milli aðliggjandi raðhúsa. Að lokum er skilgreindur fjöldi bílastæða á lóðum.

UPPDRÁTTUR

Tillagan verður til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 10. febrúar 2021 til og með 24. mars 2021.

Auglýsing á breyttu deiliskipulagi hafnarsvæðis H-2 við Eiðið vesturhluti. Skipulagstillaga

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 28. janúar 2021 að auglýsa breytingatillögu á deiliskipulagi hafnarsvæðis H-2 við Eiðið vesturhluti skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um er að ræða breytingar á deiliskipulag hafnarsvæðis H-2 við Eiðið vesturhluti (sjá á kortavef Vestmannaeyjabæjar, ef hakað er í Aðalskipulag).

Um er að ræða breytingar, útbúin er ný byggingarlóð við Kleifar 3a. Sett eru inn tvö geymslusvæði fyrir Vestmannaeyjabæ sem staðsett eru norður við skipalyftu. Svæðismörkum skipulagsins er einnig breytt og mörkin færð austar, að vestur enda lóðamarka Kleifa 1 og Kleifa 6.

UPPDRÁTTUR

Tillagan verður til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 10. febrúar 2021 til og með 24. mars 2021.

Auglýsing á breyttu deiliskipulagi hafnarsvæðis H-2 við Eiðið austurhluti. Skipulagstillaga

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 28. janúar 2021 að auglýsa breytingatillögu á deiliskipulagi hafnarsvæðis H-2 við Eiðið austurhluti skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um er að ræða breytingar á deiliskipulag hafnarsvæðis H-2 við Eiðið austurhluti (sjá á kortavef Vestmannaeyjabæjar, ef hakað er í Aðalskipulag).

Breytingarnar felast í að svæðismörkum skipulagsins er einnig breytt og mörkin færð austar vegna nýrra lóða á austurhluta skipulagssvæðisins, að vestur enda lóðamarka Kleifa 1 og Kleifa 6.

UPPDRÁTTUR

Tillagan verður til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 10. febrúar 2021 til og með 24. mars 2021.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 24. mars 2021 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5, eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.