Merkúr með nýtt lag og myndband
10. apríl, 2021

Strákarnir í Merkúr voru að gefa út fyrsta lagið af Nýrri plötu sem fer í loftið 14. maí. “Lagið heitir “Blind” og var það fyrsta lagið sem við sömdum eftir að hafa endurhugsað hljómsveitina. Eftir að við gáfum út fyrstu plötuna okkar “Apocalypse Rising” árið 2018 þá fengum við góðar móttökur en því meira sem við þróuðumst sem hljómsveit því augljósara varð það að við vorum ekki að gera neitt nýtt. Við ákváðum að í staðinn fyrir að hljóma eins og allir aðrir og búa til lög sem hljóma alveg eins þá ætlum við að gera eitthvað nýtt og semja lög sem við viljum sjálfir heyra í útvarpinu. Það byrjaði með því að stilla öll hljóðfærin okkar í stillingu sem við þróuðum sjálfir sem engin annar er að nota, Það býður okkur uppá það að búa til hljóma sem erfitt væri að gera á venjulega stilltum hljóðfærum,” segir í tilkynningu frá strákunum.

100% heimagert Vestmannaeyjarokk
Auk þess að gefa lagið út á öllum helstu streymisveitum þá ákváðu þeir að henda í rosalegt tónlistarmyndband. Öll platan er tekin upp í kjallaranum í Hvítasunnukirkju Vestmannaeyja (betel) og Arnar Júlíusson sá um alla hljóðvinnslu. Því má segja að þetta sé 100% heimagert Vestmannaeyjarokk.

Spotifyhttps://open.spotify.com/track/3zEQOGhU7bpUsTyRDOy25d?si=b1d01f7b4e0f4b7f

Myndbandhttps://www.youtube.com/watch?v=CUcV_xK1KqU&ab_channel=Merk%C3%BAr

Instagramhttps://www.instagram.com/officialmerkur/

Meðlimir:

Arnar Júlíusson – Gítar og söngur

Trausti Mar Sigurðarson – Gítar og söngur

Birgir Þór Bjarnason – Bassi og bakrödd

Mikael Magnússon – Trommur

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst