Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis að aflamark í ýsu verði aukið um 8.000 tonn þ.e. úr 44.419 tonnum í 52.419 tonn. Sú hækkun verður dregin frá því aflamarki sem annars yrði úthlutað á fiskveiðiárinu 2021/2022. Kristján Þór gerði ríkisstjórn í morgun grein fyrir þessari ákvörðun.
Tilefni þessarar ákvörðunar eru erfiðleikar sem rekja má til mikillar ýsugengdar á veiðisvæðum við Ísland en þann 21. apríl var búið að veiða rúmlega 90% aflaheimilda í ýsu fyrir yfirstandandi fiskveiðiár.
Hafrannsóknarstofnun og Fiskistofa taka undir að nauðsynlegt sé að bregðast við vandanum. Í áliti Hafrannsóknarstofnunar segir:
„Eins og fram hefur komið telur ráðuneytið ekki aðrar færar til að taka á vandanum, að óbreyttum lögum, en sú að aflamark verði aukið. Hafrannsóknastofnun leggst ekki gegn því að aflamark verði aukið á yfirstandandi fiskveiðiári enda verða heimildirnar dregnar frá því aflamarki sem annars yrði úthlutað á fiskveiðiárinu 2021/2022, samkvæmt samþykktri aflareglu.
Stofnunin bendir á að aukningin nú gæti valdið því að svipaður vandi komi upp á næsta fiskveiðiári og því mikilvægt að öllum verði ljóst að aukningin nú verði til frádráttar á komandi fiskveiðiári. Slík skilaboð samhliða úthlutun gætu stuðlað að því að ekki verði farið í aukna beina sókn í ýsustofninn sem aukið getur á mögulegan vanda á komandi fiskveiðiári.“
Reglugerðin tekur gildi eftir birtingu í Stjórnartíðindum
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.