Nú er aftur stefnt að nokkuð stórri bólusetningu fyrir Covid-19 í Eyjum. Í vikunni munum við bólusetja hátt í 500 einstaklinga. Segir Davíð Egilsson í tilkynningu sem send var út á fjölmiðla í Vestmannaeyjum. Annars vegar er stefnt að því að klára alla eldri en 60 ára og eldri (hópur 6) og hins vegar að halda áfram að bólusetja einstaklinga með undirliggjandi langvinna sjúkdóma sem eru í sérstökum áhættuhópi (hópur 7).
Öllum eldri en 60 ára er boðið bóluefni frá Aztra Zeneca fyrir utan einstaklinga með aukna áhættu á blóðsega eða með fyrri sögu um slíkt. Öðrum er boðið bóluefni Pfizer. Við boðun í bólusetningu ætti fólk hér eftir að sjá hvaða bóluefni því mun verða boðið. Við viljum vekja athygli á heimasíðu landlæknis þar sem hægt er að finna svör við flestum þeim spurningum sem upp koma varðandi bólusetningar og bóluefni. Starfsfólk hefur ekki möguleika að svara spurningum varðandi bóluefnin eða aukaverkanir við sjálfa bólusetninguna.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.