Umframafli í strandveiðum

Leyfi til strandveiða hefur verið gefið út til 630 báta og er landaður afli strandveiðibáta í gær mánudaginn 7. júní samtals 3.208.066 kg., sem er 28,38% af þeim heimildum (11.100 tonn) sem úthlutað er til strandveiða á fiskveiðiárinu 2020/2021. Frá þessu er greint á vef fiskistofu.

Á strandveiðum má hver bátur landa að hámarki 650 kg. af slægðum afla í þorskígildum talið í hverri veiðiferð. Í fjórðu viku strandveiða 17. – 21. maí. lönduðu 176 skip yfir leyfilegt magn, samtals 6.524 kg.

Meðfylgjandi myndi sýnir yfirlit yfir umframafla í fjórðu viku. Bláu súlurnar sýna þau skip sem lönduðu alls 100 kg. eða meira yfir leyfilegt magn í fjórðu viku strandveiða. Gráu súlurnar sýna heildarmagn umframafla niður á dagana 25. – 27. maí og var umframafli mestur þann 25. maí sl. eða 2.334 kg.

Grænu súlurnar sýna umframafla eftir svæðum. Mestur umframafli kom á svæði A eða rúm  5.258 kg.

Gögn sem Fiskistofa birtir byggja á fyrirliggjandi aflaskráningu á hafnarvog. Framangreindar upplýsingar eru birtar með þeim fyrirvara að skráning á hafnarvog sé lokið. 

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.