Bæta við ÍBV hólfum á Hlíðarenda

ÍBV mætir Val í seinni leik í undanúrslitum Íslandsmótsins annaðkvöld klukkan átta í Origohöllinni við Hlíðarenda. Mikil eftirvænting ríkir fyrir leiknum ef marka má miðasölu á leikinn. “Ég hef verið í góðum samskiptum við forsvarsmenn Vals varðandi miða á leikinn. Eins og staðan er núna eru allir miðar seldir í þau hólf sem þeir úthlutuðu ÍBV í fyrstu, en að sögn Theodórs framkvæmdastjóra Vals eru þeir að fara að bæta inn fleiri hólfum á næstu mínútum en ég er ekki með það alveg á hreinu hversu margir miðar það eru. Fyrirspurnum um miða hefur rignt inn hjá mér, símtöl, skilaboð og tölvupóstar og það greinilegt að Eyjamenn ætla að fjölmenna og hjálpa til við að tryggja okkar mönnum sæti í úrslitaeinvíginu” sagði Vilmar Þór Bjarnason, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV í samtali við Eyjafréttir.

Vilmar er að sjálfsögðu að undirbúa hópferð á leikinn. “Við erum að bjóða til sölu miða í rútuferð á okkar vegum og eru nú í þessum töluðu orðum 45 miða seldir. Við bókum rútur eftir eftirspurn, þannig ég skora á þá sem eru að spá og spekúlera að hætta að velta þessu fyrir sér og drífa sig með okkur! Nánari upplýsingar um ferðina er að finna inni á Facebook síðu ÍBV handbolta.”

Aðspurður um leikinn sjálfan var Vilmar bjartsýnn að vanda. “Leikurinn leggst bara virkilega vel í mig. Við Eyjamenn höfum margoft sýnt og sannað að við erum best undir mikilli pressu og með bakið upp við vegg. Karakterinn í liðinu okkar alveg hreint magnaður og hef ég fulla trú á að við snúum einvíginu okkur í vil og tryggjum okkur sæti í úrslitunum. Fjölmennum í Origo-höllina á morgun, sýnum úr hverju við erum gerð og myndum brjálaða stemmningu.”

Nýjustu fréttir

Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.