Auknar heimildir til strandveiða
20. júlí, 2021

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um auknar heimildir til strandveiða. Alls verður 1.171 tonnum af þorski bætt við en um er að ræða óráðstafað magn sem kom til á skiptimarkaði í skiptum fyrir makríl og fleiri tegundir. Með þessari aukningu verður því heildarmagn í þorski á strandveiðum alls 11.171 tonn og samtals 12.271 tonn af óslægðum botnfiski.

Við upphaf fiskveiðiársins 2020/2021 var 11.100 tonnum af óslægðum botnfiski ráðstafað til strandveiða. Framangreind ráðstöfun á magni byggir á ákvæðum 8. gr. laga um stjórn fiskveiða þar sem 5,3% aflamagns í hverri tegund tekið til hliðar. Þær tegundir sem ekki nýtast beint til sérstakra ráðstafana eru settar á skiptimarkað með aflamark og hefur á yfirstandandi fiskveiðiári einkum verið óskað eftir þorski í skiptum fyrir aðrar tegundir.

Hinn 19. júlí 2021 sl., að loknum 42 veiðidegi, var heildarafli á strandveiðum alls um 7.870 tonn, þar af um 7.280 tonn af þorski. Að meðaltali hefur því heildarafli á veiðidag verið tæp 190 tonn, þar af rúm 170 tonn af þorski. Að óbreyttu hefði því þurft að stöðva strandveiðar um miðjan ágúst. Með þessari aukningu til strandveiða er ráðgert að strandveiðisjómönnum verði gert kleift að stunda veiðar út ágúst. Þá mun þessi viðbótarráðstöfun einnig jafna stöðu milli einstakra veiðisvæða þar sem á sumum svæðum er besti veiðitíminn í ágúst.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.