Birgir Þórarinsson genginn til liðs við Sjálfstæðisflokkinn
Erna, Guðni, Heiðbrá og Birgir

Birgir Þórarinsson, sem kosinn var þingmaður fyrir Miðflokkinn í Suðurkjördi í ný afstöðnum þinkosningum, hefur gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn eftir að hafa verið þingmaður fyrir Miðflokkinn í fjögur ár. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú því sautján þingmenn en Miðflokkurinn aðeins tvo.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun. Birgir segir í samtali við blaðið að hann hafi gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í gærkvöldi en hann hafi greint Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, frá vistaskiptunum áður. Þá hafi hann rætt málið við varaþingmann sinn, Ernu Bjarnadóttur, sem styðji hann í ákvörðuninni.

Nú eru því aðeins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins og Bergþór Ólason þingmaður flokksins í Norðvesturkjördæmi eftir í þingflokki Miðflokks.

Birgir Þórarinsson þingmaður

Að sögn Birgis megi rekja vistaskiptin allt aftur til Klaustursmálsins sem upp kom árið í nóvember 2018 þó svo að atburðarrásin hafi verið hröð í þessari viku. Hann hafi verið ósáttur með Klaustursmálið þegar það kom upp á sínum tíma og vonað að samflokksmenn hans hefðu lært af því en annað hafi svo komið í ljós. Í kjölfar gagnrýni sinnar hafi aðrir flokksmenn aldrei treyst honum fyllilega. Hann eigi því ekki lengur samleið með Miðflokksmönnum.

„Þetta er ekki léttvæg ákvörðun, ég held það sjái allir, og ég tek hana að mjög vel ígrunduðu máli. En eftir allt það sem á undan er gengið og þá forsögu, sem ég lýsi í grein minni, þá ríkir ekki lengur traust milli mín og forystu flokksins. Í ljósi þess væri ekki heiðarlegt hjá mér, hvorki gagnvart sjálfum mér né kjósendum, að halda áfram innan hóps þar sem skortir gagnkvæmt traust,“ segir Birgir í viðtali við Morgunblaðið sem birtist í morgun. Vísar hann þar til greinar, sem hann skrifaði og birtist í blaðinu í morgun.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.