Betra ef hér væru fleiri skip
Polar Amaroq. Mynd/Þorgeir Baldursson

Uppsjávarskipið Polar Amaroq er statt við línuna á milli Íslands og Grænlands og leitar loðnu. Heimasíða Síldarvinnslunnar hafði samband við skipið í gær og ræddi við Ólaf Sigurðsson, stýrimann. Ólafur var fyrst spurður hvort vart hefði orðið við loðnu.

„Við erum hérna Grænlandsmegin við línuna og það eina sem við höfum séð núna er smáryk. Við erum bara einir að leita á gríðarlega stóru hafsvæði og vissulega væri betra ef hér væru fleiri skip. Þetta er þolinmæðisverk. Nú er búið að leita í sólarhring en við þurftum að leita hafnar á Akureyri vegna brælu. Við hófum leitina fyrir bræluna og tókum þá fjögur hol. Aflinn var ekki mikill eða 10 til 70 tonn í holi. Loðnan var fryst um borð og því eru um 110 tonn af frystri loðnu í skipinu. Það er búið að mæla tvær milljónir tonna af loðnu og hún er einhvers staðar. Það er bara tímaspursmál hvenær við rekumst á hana. Menn eru afar bjartsýnir fyrir komandi vertíð en gott væri ef fleiri skip kæmu til leitar,“ segir Ólafur.

Nýjustu fréttir

Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.